Ævisaga Jónínu prentuð í risaupplagi 29. október 2010 10:00 Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, hellir sér út í bókaútgáfu og veðjar á ævisögu Jónínu Benediktsdóttur. Mynd//GVA „
Mér hefur fundist þessi markaður vera staðnaður. Vöruhúsabisness. Þessu viljum við breyta," segir Hermann Guðmundsson, forstjóri N1. Fyrirtækið blandar sér í slaginn um jólabækurnar þetta árið og hefur keypt dreifingarrétt á tveimur bókum; ævisögu Jónínu Benediktsdóttur sem Sena gefur út og bók sem Björgvin G. Sigurðsson, fyrrum viðskiptaráðherra, skrifar í samvinnu við Karl Th. Birgisson, sem gefur bókina jafnframt út. Hermann og hans fólk virðist hafa tröllatrú á bókunum því þær eru prentaðar í stærra upplagi en hefur viðgengist í bókaútgáfu hérlendis síðustu ár. Lenskan hefur verið að prenta aukaprentanir ef vinsældir gefa tilefni til þess. Fyrsta upplag af bók Jónínu verður hins vegar tíu þúsund eintök. „Við höfum trú á þessari bók og ég ætla að selja þetta upplag og helst meira. Tíu þúsund er jú innan við tíu prósent af heimilum landsins," segir Hermann sem hefur sjálfur ekki lesið bók Jónínu. „Ég hef ekki séð staf úr henni." Bók Björgvins verður prentuð í sjö þúsund eintökum til að byrja með. „Svo kemur í ljós hvort sá markaður er fyrir hendi." Hermann segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um að bækurnar verði seldar víðar en í verslunum N1. „Ef við sjáum góðan takt í þessu, þá fer þetta ekki mikið víðar," segir forstjórinn en ýmsir nýir siðir fylgja nýjum mönnum í bókabransanum. Ekki verður skilaréttur á bókunum en á móti kemur að þær verða allar númeraðar. Eftir jólin verður svo dregið úr seldum eintökum og hinir heppnu hljóta vinninga. Þá mun hluti af söluandvirðinu renna til góðgerðamála. Jónína Ben. hefur valið Konukot en málefni Björgvins hefur ekki verið ákveðið.- hdm
Mest lesið Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Sjá meira