Europol aðstoðar við rannsókn kókaínmálsins 25. maí 2010 06:00 Gæsluvarðhald var framlengt yfir fjórum mönnum á föstudag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann átta milljónir króna í tveimur aðskildum bankahólfum í tengslum við rannsókn sína á kókaínmáli, þar sem reynt var að smygla þremur kílóum af mjög hreinu kókaíni í ferðatöskum til landsins frá Spáni í síðasta mánuði. Í öðru hólfinu voru að auki skartgripir sem gullsmiðir hafa verðmetið á rúmar tvær milljónir. Um var að ræða hringa og annað skart. Munirnir voru fáir en fokdýrir. Ekki er talið að um þýfi sé að ræða. Sex manns sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti á föstudag áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fjórum. Þeir skulu sitja inni til 18. júní. Sá fimmti situr í gæsluvarðhaldi til 11. júní að minnsta kosti. Sá sjötti er í gæsluvarðhaldi á Suðurnesjum, úrskurðaður til 4. júní. Rannsókn málsins er nokkuð umfangsmikil en hún snýst í raun um tvær tilraunir til innflutnings á kókaíni. Í öðru tilvikinu var afhendingu fíkniefnanna fylgt eftir, það er frá því að svokallað meint burðardýr kom því í hendur viðtakenda. Rannsóknin miðar jafnframt að því að tengja málin við önnur sem upp hafa komið, bæði hérlendis og erlendis, þar sem Íslendingar hafa komið við sögu. Vegna þessa hefur Europol haft aðkomu að málinu. Það var helgina 10. til 11. apríl sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fyrstu fimm mennina vegna málsins. Maður og kona voru svo handtekin vegna málsins á Keflavíkurflugvelli á sama tímabili. Einn karlmaður til viðbótar var svo handtekinn nokkru síðar og úrskurðaður í gæsluvarðhald. -jss
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Sjá meira