Útvarpsstöðin Nálin í loftið 7. júlí 2010 04:00 Einar Karl Gunnarsson (til vinstri) ásamt hluta af dagskrárgerðarmönnum Nálarinnar, þeim Sigurði Páli, Jóni Rafni, Ragga Palla og Svavari Skúla. fréttablaðið/anton
Útvarpsstöðin Nálin fer í loftið á tíðninni 101,5 á næstu dögum. Stöðin er í eigu Útvarps Sögu og verður megináherslan lögð á klassískt rokk. „Þetta verða lög sem eru kannski ekki mikið í daglegri spilun annars staðar heldur reynum við frekar að velja gæðin umfram þessa hefðbundnu smelli,“ segir Einar Karl Gunnarsson, dagskrárstjóri Nálarinnar og sonur Arnþrúðar Karlsdóttur, útvarpsstjóra Útvarps Sögu. Spurður segir hann að skortur hafi verið á útvarpsstöð sem þessari á öldum ljósvakans. „Eins og þetta hefur verið er alltaf sama tónlistin á öllum stöðvunum, kannski með smá breytingum hér og þar. Þegar þú ferð síðan frá eldri stöðvum yfir í unglingastöðvar eru þær bara með teknó.“ Á meðal dagskrárgerðarmanna á Nálinni verða Raggi Palli, Gunnar Ásgeirsson og Gunnar Gunnarsson. Aðrir sem munu að öllum líkindum starfa þar eru tónlistarbloggarinn Jens Guð og Karl Sigurðsson, fyrrverandi útvarpsmaður á Rás 2. Auk klassíska rokksins verða ýmiss konar sérþættir í boði, þar á meðal um djass, blús og kvikmyndir. Einar Karl viðurkennir að stofnun Nálarinnar sé töluverð áhætta, sérstaklega á þessum síðustu og verstu tímum. „Öll þessi tæki og tól eru auðvitað frekar kostnaðarsöm en maður vonar bara að þetta gangi vel.“ - fb
Mest lesið „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Lífið Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Lífið Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Lífið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Lífið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Tónlist Hjarðhegðun Íslendinga Lífið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Fleiri fréttir „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Sjá meira