Lífið

Íhugar alvarlega að opna sig

Robert Pattinson  og Kristen Stewart. MYND/Cover Media
Robert Pattinson og Kristen Stewart. MYND/Cover Media

Leikkonan Kristen Stewart er alvarlega að íhuga að opna sig um samband hennar og leikarans Robert Pattinson.

Leikararnir kynntust við tökur á Twilight seríunni en hafa svo mánuðum skiptir þverneitað að eiga í ástarsambandi.

Fyrir ekki alls löngu staðfesti Robert við fjölmiðla að þau væru að hittast og að um sannar tilfinningar þeirra á milli væri að ræða.

Sagan segir að Robert sé reiðubúinn að opna sig um sambandið en Kristen er að reyna að vera jákvæð gagnvart því að heimurinn fái að vita meira um persónulegt líf hennar.

Parið, sem sást nýverið kyssast í fyrsta skipti á förnum vegi, ætlar að eyða meiri tíma saman burtséð frá annars þéttskipaðri dagskrá.

Vinur parsins segir Robert sakna Kristen öllum stundum og að hann vill alls ekki að þau vaxi í sundur.

Við spáðum fyrir lesanda Lífsins á Facebooksíðunni okkar í morgun. Vertu með eftir helgi!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.