Massadjamm á blakmóti 25. maí 2010 09:50 Valgeir Bergmann, með stóru svörtu hárkolluna, segir hópinn með eindæmum leikglaðan. Mynd/úr einkasafni
Hópur manna sem kallar sig Massadjamm vakti gríðarlega athygli fyrir mikla leikgleði og fagnaðarlæti á 35. Öldungamóti Blaksambands Íslands sem fram fór í Mosfellsbæ fyrir rúmri viku þrátt fyrir að vinna aðeins einn leik á öllu mótinu. „Við erum stór vinahópur sem kynntist í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ á sínum tíma og hefur haldið hópinn síðan. Í vinahópnum eru nokkrir sem spiluðu blak á sínum yngri árum og þóttu mjög efnilegir en svo eldast menn og þeir fóru að tala um að stofna blakfélag til að keppa í öldungadeildinni undir heitinu Massablak. Við hinir fylgdum þeim á öldungamót sem haldið var á Ísafirði og þótti svo gaman að við hóuðum saman fleiri félaga og bjuggum til annað lið sem fékk heitið Massadjamm,“ segir Valgeir Bergmann, einn meðlimur hópsins. Hann segir aðalatriðið hjá hópnum ekki að bera sigur úr býtum heldur að hafa gaman af. „Við töpuðum flestum leikjunum en aldrei leikgleðinni. Fagnaðarlætin eru oft svo mikil að stundum eru sigurliðin ekki viss um hvort þau hafi í raun unnið. Við komum fyrst og fremst til að skemmta okkur og ég held að við höfum verið það lið sem skemmti sér hvað lengst á kvöldin. Við mættum samt á alla leikina okkar næsta morgun, sumir þá ennþá nokkuð hressir. “ Um 125 lið tóku þátt í Öldungamótinu í ár og segir Valgeir að meðlimir Massadjamms hafa hvatt öll liðin til dáða meðan á mótinu stóð. „Við munduðum gettóblasterinn og héldum með öllum þeim sem þurftu á stuðningi að halda. Flestir voru ánægðir með framtakið en það var þó ein kona sem bað okkur um að lækka í tónlistinni. En við reynum að styðja alla og þess vegna held ég að það sé ekki hægt að kalla okkur blakdólga í þeim skilningi,“ segir Valgeir. - sm
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira