Lífið

Samba á Skólavörðustíg

Jussanam Dejah Brasilísk tónlist gleður.Fréttablaðið/stefán
Jussanam Dejah Brasilísk tónlist gleður.Fréttablaðið/stefán

Heitra og framandi strauma gætir nú á Skólavörðustígnum þar sem veitingahúsið Brasilía var opnað fyrir skömmu. Í kvöld klukkan 21 ætlar brasilíska söngkonan Jussanam Dejah að halda tónleika þar við undirleik píanóleikarans Agnars Más Magnússonar.

„Ég hef búið hérna í rúmlega eitt ár," segir Jussanam. Hún vinnur í Hlíðarskóla en sinnir tónlistinni af krafti. Hún hefur gefið út diskinn Ela é Carioca með íslensku bandi.

„Brasilíska tónlistin gengur vel í Íslendinga. Ég fæ góðar móttökur og þessi tónlist gleður fólk. Á prógramminu eru vinsæl brasilísk lög eftir menn eins og Caetano Veloso, Tom Jobim, Ivan Lins og Jorge Ben."

Jussanam finnst frábært að vera á Íslandi þrátt fyrir kreppu og vetrarhörkur. „Ég fæddist í Ríó De Janeiro og þetta er auðvitað allt, allt öðruvísi. Ég er vanari öðruvísi loftslagi, meiri hita. En mér finnst mjög fallegt hérna. Ég kvarta miklu minna en Íslendingarnir sem ég þekki!" - drg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.