Lífið

Fátækir panta pitsu á svið

Fátæka leikhúsið.
Fátæka leikhúsið.

Fátæka leikhúsið frumsýnir á morgun leikritið Pizzasendillinn eftir Elísabetu Jökulsdóttur, á Faktorý við Smiðjustíg, sem áður var Grand Rokk. Tilefnið er tuttugu ára ritafmæli Elísabetar um þessar mundir.

Verkið skrifaði hún árið 1997 fyrir leikritunarsamkeppni Borgarleikhússins. Leikritið hreppti ekki hnossið og lá óhreyft þar til það varð á vegi Heiðars Sumarliðasonar leikstjóra, sem blés af því rykið.

„Við Elísabet vorum saman í fræðum og framkvæmd við LHÍ,“ útskýrir Heiðar, „og höfum haldið góðu sambandi síðan við útskrifuðumst fyrir að verða tveimur árum. Ég hef reyndar aldrei verið mjög hrifin af verkum Elísabetar sem slíkum og verið hreinskilinn við hana með það. En síðan las ég verk eftir hana sem verður sett upp í Útvarpsleikhúsinu í vetur og varð stórhrifinn. Ég spurði hana hvort hún lumaði á fleiri verkum og þá lét hún mig fá Pizzasendilinn, sem ég varð líka mjög hrifinn af og ákvað að setja upp.“

Leikritið fjallar um fjölskyldu við Melhaga sem er hleypt í uppnám þegar pitsusendill ber að dyrum með sendingu sem enginn kannast við að hafa pantað. Sendillinn ætlar hins vegar að koma sendingunni til skila hvað sem tautar og raular og flækist inn í líf fjölskyldunnar, sem er ekki öll þar sem hún er séð.

Fátæka leikhúsið er grasrótarhópur, sem eins og nafnið gefur til kynna hefur ekki mikið fé á milli handanna. „Þetta er að öllu leyti gert í sjálfboðavinnu,“ segir Heiðar. „Við vorum svo heppin að fá frítt húsnæði og ég held að hæsti útgjaldaliðurinn hingað til hafi verið strætófargjaldið fyrir okkur Elísabetu upp í Útvarpshús þar sem við fórum í viðtal.“

Að sögn Heiðars er þetta eina leiðin fyrir ungt leiklistarfólk til að koma sér á framfæri, ekki síst leikstjóra. „Það hafa svo margir útskrifast eftir tilkomu fræða og framkvæmda við LHÍ og það komast miklu færri að en vilja við stóru leikhúsin. Eina leiðin er því að gera hlutina sjálfur og vinna nógu mikið. Það skilar sér á endanum,“ segir Heiðar, sem hefur leikstýrt fjórum verkum eftir að hann útskrifaðist.

Leikarar í Pizzasendlinum eru Þóra Karítas Árnadóttir, Magnús Guðmundsson, Saga Garðarsdóttir og Hjörtur Jóhann Jónsson. Almennt miðaverð er 1000 krónur en 500 krónur fyrir fátæka. Hægt er að panta miða með því að senda póst á fataek@gmail.com eða hringja í 845-2387.

bergsteinn@frettabladid.is

 

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.