Lífið

Glatað deit með athyglissjúkum einkaþjálfara

Katherine Heigl. MYND/BANG Showbiz
Katherine Heigl. MYND/BANG Showbiz

Leikkonan Katherine Heigl, 31 árs, segir að versta stefnumót sem hún hefur nokkurn tíman farið á var með athyglissjúkum einkaþjálfara.

Umræddur þjálfari bauð Katherine út þegar hún var aðeins 18 ára gömul eftir að hún byrjaði að æfa hjá honum.

„Á þessum tíma var ég 10 kílóum of þung og reyndi eins og ég gat að létta mig í ræktinni. Hann bauð mér út, bauð mér í glas og síðan spurði hann hvort ég gæti fengið umboðsmanninn minn til að hjálpa honum að verða leikari," útskýrði Katherine og bætti við:

„Þá áttaði ég mig á því að hann var athyglissjúkur og hafði ekki nokkurn áhuga á mér heldur umboðsmanninum mínum."

Katherine byrjaði snemma að leika í kvikmyndum. Árið 1992 fékk hún aukahlutverk í myndinni „That Night". Þá lék hún ásamt leikaranum Steven Seagal árið 1995 í myndinni „Under Siege 2: Dark Territory".

Stjörnumerkjapælingar, spár og spjall á Lífinu á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.