Saman í öll jólaboðin 24. desember 2010 10:00 Tobba og Kalli hlakka til að halda upp á fyrstu jólin sín saman en borða hvort í sínu lagi á aðfangadagskvöld.Fréttablaðið/valli „
Það má segja að Tobba sé að fjölskylduvæða mig þessi jólin. Ég fer í fleiri jólaboð í ár en í fyrra en held þó í mínar hefðir,“ segir Karl Sigurðsson, borgarfulltrúi Besta flokksins og meðlimur Baggalúts, um hvernig jólahaldi hans og Þorbjargar Marinósdóttur, Tobbu eins og hún er kölluð, er háttað. Þau byrjuðu saman á árinu en ætla að vera hvort í sínu lagi yfir matinn á aðfangadagskvöld og hittast svo á eftir. „Það eru fleiri fjölskylduboð hjá henni en mér yfir hátíðarnar og ég fer samviskusamlega í þau öll, sem er bara gaman því fjölskyldan hennar er svo hress og skemmtileg,“ segir Kalli en hann segist ekkert vera stressaður þótt hann sé að fara að hitta sum skyldmenni Tobbu í fyrsta sinn. „Nei, ég er ekkert stressaður og hlakka bara til.“ Þegar Fréttablaðið náði tali af Kalla var hann á leiðinni í skötuboð eða skötumessu eins og hann kallaði það og svo hangikjöt hjá foreldrum Tobbu á Þorláksmessukvöld. Hann segist löngu búinn að kaupa jólagjöfina handa kærustunni en hann þáði smá hjálp frá tengdamóður sinni með gjafavalið. „Ég gef henni tvo pakka. Annan keypti ég fyrir löngu en svo fékk ég aðstoð frá tengdamóður minni með seinni pakkann enda þekkir hún dóttur sína út og inn. Það er gott að eiga góða tengdamóður,“ segir Kalli að lokum og heldur af stað í langþráða skötuveislu. - áp
Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira