Verður gott að hafa Ragnhildi Steinunni sér við hlið 2. nóvember 2010 12:00 Guðmundur Gunnarsson mun taka sér stöðu við hlið Ragnhildar Steinunnar þegar söngvakeppni Sjónvarpsins hefur göngu sína og kynna til leiks þau lög sem keppa um að verða framlag Íslands til Eurovision. „
Þetta er stóra stökkið og stórtíðindi fyrir hið bolvíska samfélag. Allavega hoppaði konan mín hæð sína af kæti,“ segir Guðmundur Gunnarsson sjónvarpsmaður. Hann verður annar af kynnum í söngvakeppni Sjónvarpsins en Ragnhildur Steinunn mun snúa aftur á skjáinn eftir fæðingarorlof sitt og stýra keppninni af sinni alkunnu snilld með honum. Guðmundur vakti fyrst athygli fyrir skemmtileg innslög frá landsbyggðinni í fréttatímum Sjónvarpsins en hann hefur að undanförnu verið að gera þættina Á meðan ég man þar sem gamalt efni úr safni Ríkissjónvarpsins er í aðalhlutverki. Guðmundur segist gera sér vel grein fyrir því út í hvaða hákarlalaug hann sé að stökkva, söngvakeppnin sé stór hluti af íslenskri sjónvarpsmenningu enda fylgist rúmlega helmingur þjóðarinnar allajafna með. „Það koma allir til með að hafa skoðanir á því hvernig maður segir hlutina og ekki síst í hverju maður er í útsendingu,“ segir Guðmundur en eins og frægt er orðið hellti fagstjóri fatahönnunardeildar LHÍ sér yfir þær Evu Maríu og Ragnhildi Steinunni í fyrra og gagnrýndi þær harðlega fyrir klæðaburð sinn í úrslitaþættinum. Guðmundur segist ekki hræðast slíkar skeytasendingar en bætir því við að það verði gott að hafa vana manneskju sér við hlið. Sjónvarpsmaðurinn fer að hlæja þegar hann er spurður hvort hann sé ekki hreinlega næsti „Gísli Einarsson“, sjónvarpsstjarna landsbyggðarinnar, en sá vinsæli sjónvarpsmaður var einmitt einnig kynnir við hlið Ragnhildar Steinunnar fyrir daga Evu Maríu. „Ég er allavega ekki jafn frýnilegur og Eva,“ segir Guðmundur af mikilli hógværð. Guðmundur á sér sitt uppáhaldslag sem er Lífið er lag með hljómsveitinni Módel. Hann viðurkennir hins vegar að hann sé svona laumuaðdáandi, ólíkt syni sínum sem sé einhver harðasti Eurovision-aðdáandi sem sögur fari af. „Og hann verður örugglega mjög sáttur, ég verð eiginlega að hringja í hann og segja honum frá þessu.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Lífið Fleiri fréttir Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjá meira