Lífið

Í myndbandi eftir frægan teiknara

Tískubloggarinn Þórhildur Þorkelsdóttir bjó í New York um skeið og lék í myndbandi sem sýnt var á tískuvikunum í New York og London. 
fréttablaðið/GVA
Tískubloggarinn Þórhildur Þorkelsdóttir bjó í New York um skeið og lék í myndbandi sem sýnt var á tískuvikunum í New York og London. fréttablaðið/GVA
„Ég hafði ekki hugmynd um að þetta væri svona stórt verkefni,“ segir Þórhildur Þorkelsdóttir, tískubloggari, sem var fengin til að leika í myndbandi í sumar sem síðar var sýnt á stóru tískuvikunum í New York og London. „Þegar myndbandið var frumsýnt var haldið heljarinnar frumsýningarpartí á Soho Grand í New York og um 300 gestum boðið,“ segir Þórhildur.

Listamaðurinn sem stóð á bak við myndbandið heitir Philip Smiley og er teiknari, en í myndbandinu sést Þórhildur ráfa um í teiknuðu umhverfi sem allt var hannað af Smiley. „Hann hefur verið að vinna með Stellu McCartney, Burberry og fleiri þekktum hönnuðum,“ segir Þórhildur, sem eyddi síðasta ári í New York sem au pair.

„Maður sem ég kynnist fyrir tilviljun á flugvellinum úti segir mér síðar að vinur hans sé að leita að venjulegri stelpu til að leika í myndbandi fyrir sig. Sá maður reynist svo vera Philip Smiley.“ Þórhildur reiknar ekki með að taka þátt í fleiri myndböndum með Smiley, þetta hafi einfaldlega bara verið skemmtilegt verkefni.

Tískublogg Þórhildar hafa vakið athygli á veraldarvefnum en Þórhildur byrjaði fyrst að blogga eftir að hún fluttist til New York. „Ég fór út ágúst í fyrra og byrjaði þá að blogga um daginn og veginn. Það þróaðist svo bara út í tískublogg,“ segir Þórhildur, sem bloggar enn þrátt fyrir að vera flutt heim. Fyrir áhugasama er hægt að kynna sér bloggið hennar á www.thorhildurth.blogspot.com. - ka





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.