Arcade Fire og Kanye West skipta með sér toppsætinu 16. desember 2010 10:00 Arcade Fire og Kanye West eiga bestu plötur ársins 2010 ef marka má erlend tónlistartímarit.
Rapparinn Kanye West og kanadíska hljómsveitin Arcade Fire eiga plötur ársins samkvæmt árslistum hinna ýmsu dagblaða og tónlistartímarita. Árslistar helstu tónlistartímarita og dagblaða heims hafa verið að tínast inn að undanförnu. Bresku tónlistartímaritin Mojo og Q og hið bandaríska Rolling Stone hafa sent frá sér uppgjör, auk þess sem heimasíðan Metacritic.com hefur tekið hina ýmsu árslista saman og gefið flytjendum einkunnir eftir sætunum sem þeir lenda í. Ljóst er að plöturnar The Suburbs með kanadísku hljómsveitinni Arcade Fire og My Beautiful Dark Twisted Fantasy með bandaríska rapparanum og hrokagikknum Kanye West skara fram úr þegar allt er tekið saman og hljóta því að teljast plötur ársins. Báðir flytjendurnir hafa lengi verið í hávegum hafðir hjá tónlistargagnrýnendum og ætti því að koma fáum á óvart að sjá þá í efstu sætunum. Arcade Fire fékk frábæra dóma fyrir tvær fyrstu plötur sínar, sérstaklega hina mögnuðu Funeral, á meðan Kanye sló í gegn með frumburðinum The College Dropout. Önnur plata ofarlega á mörgum árslistum er Brothers með rokkdúóinu The Black Keys, auk þess sem bandaríski sveitasöngvarinn Jamey Johnson fær óvænta rós í hnappagatið fyrir plötuna The Guitar Song. Aðrir sem komast í mjúkinn eru rapparinn Big Boi úr hljómsveitinni Outkast sem hefur fengið fína dóma fyrir sína fyrstu sólóplötu, bandaríska sveitin LCD Soundsystem, draumpoppararnir í Beach House, John Grant og gamla kempan Robert Plant.freyr@frettabladid.is
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira