Lífið

Ekki sofa hjá meðleikurunum

Jeff Bridges ásamt eiginkonu sinni Susan. Óskarsstyttan er að sjálfsögðu ekki langt undan.
nordicphotos/getty
Jeff Bridges ásamt eiginkonu sinni Susan. Óskarsstyttan er að sjálfsögðu ekki langt undan. nordicphotos/getty
Leikarinn Jeff Bridges hefur varað kollega sína við því að efna til ástarsambanda við meðleikara sína.

Hinn sextugi Bridges, sem vann Óskarinn í fyrsta sinn fyrir Crazy Heart, segist aldrei freistast til að halda fram hjá eiginkonu sinni Susan sem hann hefur verið kvæntur í 33 ár. „Þú vilt ekki stunda kynlíf með einhverjum sem leikur á móti þér. Það fylgja því tóm vandræði. Fjölskyldan mín skiptir mig of miklu máli. Ég veit að kynlíf getur kostað þig allt,“ sagði Bridges. „Ég er svo ástfanginn af konunni minni. Samband okkar batnar og batnar með hverju árinu. Eiginkonan styður við bakið á mér og það gerir mig jafnvel ennþá ástfangnari af henni.“

Hann viðurkennir að hjónabandið hafi verið nokkuð erfitt til að byrja með. „Ég var hræddur við að ganga í hjónaband. Það skiptir engu máli hversu mörgum konum þú ert með sem einhleypur maður, þér finnst þú alltaf þurfa á fleirum að halda.“

Bridges er í skýjunum þessa dagana eftir að hafa fengið Óskarinn í fimmtu tilraun en hann hafði fjórum sinnum áður verið tilnefndur án þess að vinna. Næsta mynd hans er vísindaskáldsögumyndin Tron Legacy sem er framhald myndarinnar Tron sem kom út 1982. Þar lék Bridges einmitt eitt aðalhlutverkanna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.