Lífið

Bakkus á hilluna

Vill hætta að drekka Amy Winehouse er tilbúin að fórna ýmsu fyrir nýja kærastann, leikstjórann Reg Traviss. 
Fréttablaðið/getty
Vill hætta að drekka Amy Winehouse er tilbúin að fórna ýmsu fyrir nýja kærastann, leikstjórann Reg Traviss. Fréttablaðið/getty

Söngkonan Amy Winehouse er tilbúin að hætta að drekka og leggja partílífernið á hilluna fyrir kærasta sinn, leikstjórann Reg Traviss. Þessi kúvending á hugsunarhætti Winehouse átti sér stað í kjölfarið á myndbirtingum af Traviss að leiða fyrrum kærustu sína fyrir stuttu. Söngkonan breska á að hafa byrjað að hugsa sinn gang og óttast að það sé mikilli drykkju hennar og partístandi um að kenna að Traviss leiti til fyrrverandi kærustu.

Traviss og Winehouse byrjuðu saman fyrr á þessu ári og hafa foreldrar söngkonunnar lagt blessun sína yfir sambandið en þau voru ekki ánægð með fyrrum eiginmann Winehouse, Blake Fielder-Civil, og kenndu honum um ófarir dóttur sinnar. Reg Traviss virðist hafa betri áhrif á Winehouse enn sem komið er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.