Lífið

Talar út um skilnaðinn

Sandra Bullock ætlar að leyfa almenningi að heyra sína hlið af skilnaðinum við Jesse James.
Fréttablaðið/getty
Sandra Bullock ætlar að leyfa almenningi að heyra sína hlið af skilnaðinum við Jesse James. Fréttablaðið/getty

Leikkonan Sandra Bullock hyggst tala út í fyrsta sinn opinskátt um skilnaðinn við mótorhjólaframleiðandann Jesse James í sjónvarpsviðtali við stöðina WEENN í næstu viku.

Framhjáhald James kom eins og elding úr heiðskíru lofti í Hollywood stuttu eftir að Bullock vann Óskarsverðlaun fyrir besta leik síðasta vor og skildu þau í kjölfarið eftir fimm ára hjónaband. Leikkonan hefur ekki tjáð sig um málið fyrr og bíða því margir spenntir eftir að heyra hennar hlið af málinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.