Vigta gesti og gangandi 4. maí 2010 21:30 Sálfræingurinn Sigrún Daníelsdóttir er ... Mynd/GVA „
Við erum öll mismunandi vaxin frá náttúrunnar hendi og því er ekki farsælt ef ein tegund líkamsvaxtar þykir fín og önnur ekki. Það leiðir til félagslegrar flokkunar og mismununar sem skapar togstreitu og vanlíðan,“ Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur sem er í forsvari fyrir Megrunarlausa daginn sem haldinn verður næstkomandi fimmtudag. Þá gefst gestum og gangandi í Kringlunni og Smáralind kostur á að stíga á heldur óhefðbunda vigt. Megrunarlausi dagurinn er baráttudagur gegn þeim viðhorfum í samfélaginu að það sé gott að vera grannur og slæmt að vera feitur. Þetta er í fimmta sem dagurinn er haldinn hér á landi. Árið 1992 stofnaði Mary Evans Young, fyrrum átröskunarsjúklingur, International No Diet Day til þess að vekja athygli á skaðlegum áhrifum útlitsdýrkunar og mismununar í garð þeirra sem falla utan hins viðurkennda ramma um æskilegan líkamsvöxt.Fáir lifa í sátt við líkama sinn Sigrún segir að flestir þegnar vestrænna samfélaga líða fyrir þessi viðhorf og þá einkum konur. Afleiðingin sé sú að fáir lifi í sátt við líkama sinn. Slík vanlíðan geti verið undanfari geðrænna vandamála á borð við þunglyndi, átraskanir og jafnvel sjálfsvígstilraunir. Sigrún segir að vanlíðan sem rekja megi til áhrifa útlitsdýrkunar geti hafi slæm áhrif lífsvenjur fólks og ýtt undir ofát og hreyfingarleysi. „Við sem stöndum að Megrunarlausa deginum teljum algjörlega nauðsynlegt að koma á viðhorfsbreytingu innan samfélagsins varðandi þessi mál.“Ekki dagur til að borða yfir sig af snakki Viðbrögðin við Megrunarlausa deginum hafa verið mjög jákvæð og vaxandi með hverju árinu, að sögn Sigrúnar. „Auðvitað eru alltaf einhverjir sem misskilja og halda að þetta sé dagur til þess að borða yfir sig af snakki og sælgæti en það er alls ekki boðskapur dagsins.“ Sigrún segir að það undirstriki hugsanlega sjúkleika samfélagsins þegar talað er um að hætta í megrun þá hugsi margir að það þýði óhóf í hina áttina. „Enda leiða megrunartilraunir oft til ofáts þar sem öfgarnar vilja kalla á hvor aðra. Við höfum hins vegar orðið vör við að sífellt fleiri eru að kveikja á því að til þess að líða vel í lífinu þurfum við að sættast við okkur sjálf eins og við erum og við aðra eins og þeir eru.“ Sigrún segir að allir geti hugsað vel um líkama sinn óháð því hvað vigtin segi. Að hennar mati eru meiri líkur á því að fólk haldi jákvæðum lífsvenjum ef góð heilsa og vellíðan eru markmið í sjálfu sér, en ekki talan á vigtinni.Vigtin sýnir jákvæð lýsingarorð „Í ár munum við vera í Kringlunni og Smáralind með bæklinga, barmmerki og ýmislegt dreifiefni ásamt nýstárlegri vigt sem við ætlum að bjóða gestum og gangandi að stíga á,“ segir Sigrún aðspurð hvernig haldið verði upp á daginn í ár. Vigtin sýni jákvæð lýsingarorð eins og töff, frábær, heillandi í staðinn fyrir tölur. „Markmiðið er að vekja athygli á því hvað vigtin er orðin að neikvæðu afli í lífi okkar þar sem við leyfum henni að dæma okkur. Ef talan sem birtist er lág þá erum við góð, falleg, spennandi og skemmtileg en ef hún er há þá er það áfellisdómur yfir okkur. Við viljum benda á að mannkostir eru ekki mældir í kílóum og við höfum öll góða eiginleika óháð holdafari,“ segir Sigrún. Nánari upplýsingar um Megrunarlausa daginn er hægt að nálgast á vefsíðunni www.likamsvirding.is.
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Sjá meira