Aftur til upphafsins 28. október 2010 05:00 Níunda útgáfan í Bootleg-röð Bobs Dylan veldur ekki vonbrigðum.
Útgáfuröðin Bootleg Series sem er helguð sjaldheyrðum upptökum frá ferli Bobs Dylan er einstök í tónlistarútgáfusögunni. Það hafa auðvitað komið út flottir pakkar með fágætu efni annarra listamanna, en það sem gerir Bootleg-röð Dylans sérstaka er sú staðreynd að þrátt fyrir magnið (15 diskar komnir) fara gæðin ekkert minnkandi. Í síðustu viku kom níundi hlutinn í verslanir – The Witmark Demos: 1962-1964. Þetta eru 47 lög á tveimur diskum og eins og nafnið gefur til kynna eru þetta demó-upptökur sem Dylan gerði fyrir þá tvo aðila sem hann gerði fyrst samning við um útgáfurétt á lögunum sínum. Fyrstu lögin eru tekin upp í janúar 1962 fyrir Lou Levy hjá Leeds Music, en meginhluti efnisins er hljóðritaður fyrir M Witmark & Sons á árunum 1962-1964. Dylan er þarna einn með kassagítarinn og munnhörpuna og tekur aðeins í píanó líka. Þarna eru mörg fræg Dylan-lög (Blowin‘ in the Wind, A Hard Rain’s a-Gonna Fall, Masters of War, Don‘t Think Twice…), en líka lög sem aldrei náðu á plötu og voru jafnvel aldrei spiluð á tónleikum. Hljómurinn er góður og andrúmsloftið afslappað. Dylan hóstar, stoppar af því hann man ekki textann og kynnir stöku lög. The Witmark Demos er enn eitt púslið í heildarmyndina fyrir aðdáendur Dylans. Ómetanlegt er að heyra þetta efni. Að auki fylgir 60 síðna bók með. Í henni eru meðal annars myndir og handskrifaðir og vélritaðir textar frá þessum tíma. Aðalefnið er samt texti eftir Colin Escott sem rekur sögu þessara hljóðritana og varpar ljósi bæði á feril Dylans og það ástand sem ríkti á þessum árum í bandarískri plötuútgáfu. Blautur draumur poppnördsins ...
Mest lesið „Við erum eiginlega gangandi kraftaverk“ Lífið Barnaefni fyrir fullorðna Gagnrýni Sló sér upp með báðum á mótinu og endaði með sigurvegaranum Lífið 2222 dagar sem betri útgáfa af sjálfum sér Lífið Hollendingar bætast í sniðgönguhópinn Lífið Síðasta vígið fallið: „Við erum búnir að ræða þetta í 22 ár“ Lífið Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lífið samstarf „Algjörlega út úr kortinu fyrir íslenskan listamann“ Tónlist Stofnandi Omnom selur hönnunarhús í Akrahverfinu Lífið Ástin sigrar í nýrri herferð gegn ofbeldi Tíska og hönnun Fleiri fréttir Stofnandi Omnom selur hönnunarhús í Akrahverfinu Sló sér upp með báðum á mótinu og endaði með sigurvegaranum Hollendingar bætast í sniðgönguhópinn Læknirinn með risa heimasmíðaðan pizzakofa í garðinum 2222 dagar sem betri útgáfa af sjálfum sér „Við erum eiginlega gangandi kraftaverk“ Síðasta vígið fallið: „Við erum búnir að ræða þetta í 22 ár“ Óttar selur glæsiíbúð í Garðabæ Guðlaugur Þór í klandri með klukkuna Brynja og Lil Curly ástfangin í draumkenndu fríi Ragnhildur Steinunn snýr aftur á hvíta tjaldið Birti bónorðið í Bændablaðinu Svona verður Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu Tugmilljóna trúlofunarhringur ofurfyrirsætu vekur athygli Uppfyllti loksins loforð um ísbjörn í Reykjavík Áslaug Arna situr tíma hjá Hillary Clinton „Eiginlega vandræðalega mikil áhrif“ Er í lagi að fróa sér yfir nektarmyndum af fyrrverandi? „Pabbi minn gaf okkur saman“ Litrík og ljúffeng búddaskál Unnsteinn Manuel og Ágústa selja hvíta miðbæjarperlu Ekki allt sem sýnist í Coldplay-skandalnum Umdeild mormónadrottning nýja piparjónkan Leifur Andri og Hugrún selja íbúðina í Garðabæ Á leið á heimsmeistaramót í drifti: „Íslendingarnir eru til, við getum þetta líka“ Endurheimti lífsgleðina við gerð ostabakkanna Ástrós Trausta, John Legend og Bæjarins Beztu í Kjós Afar ólíklegt að Ísland taki þátt í Eurovision verði Ísrael með Sunneva syrgir Bellu: „Ég mun alltaf sakna þín“ „Pabbi Rúríks“ lét sig ekki vanta Sjá meira