Sætur bíll sem gleður augað 11. október 2010 12:00 Ólína Sigurjónsdóttir skreytti bíl sinn með augnhárum fyrir framljósin og hefur uppátækið vakið mikla athygli. fréttablaðið/valli
Ólína Sigurjónsdóttir ekur um göturnar á afskaplega fallegum bíl og hefur vakið verðskuldaða athygli meðal annarra ökumanna. Bíll Ólínu skartar fallegum, löngum augnhárum yfir framljósunum og er án efa einn sætasti bíll landsins um þessar mundir. „Dóttir mín var að skoða vefsíðuna Pressan.is og las grein um að konur gætu nú loks gert bílana sína svolítið kvenlegri með því að skreyta þá með augnhárum. Fyrst þetta var ekki svo dýrt ákvað ég að splæsa svona á bílinn minn. Þetta var nú aðallega í gríni gert,“ útskýrir Ólína. Augnhárin voru pöntuð af vefsíðunni www.carlashes.com og send hingað frá Bandaríkjunum og kveðst Ólína ánægð með kaupin. „Mér fannst ég þurfa að lífga svolítið upp á bílinn og þótti þetta skemmtileg leið. Karlmenn geta bætt við allskyns skrauti á bílana sína, eins og pústi og vindskeið, en fyrir okkur konurnar var ekki um svo mikið að velja. Nema þá kannski loðin stýri og annað slíkt.“ Aðspurð segir Ólína bílinn hafa vakið athygli meðal manna og finnst henni ágætt að geta gefið fólki eitthvað til að brosa yfir. „Fólk brosir yfir þessum skrítna bíl í umferðinni. Sumir öskra og hlæja aðrir bara stara, en sem betur fer hefur þetta ekki valdið neinum árekstrum,“ segir Ólína hlæjandi og bætir við: „Sumir spyrja hvort ég ætli ekki að bæta við glossi á bílinn en ég svara að bara að bónið á bílnum sé nógu mikill glans fyrir mig.“ - sm
Mest lesið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat Lífið Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Lífið Óbarinn, með smjörklípu eða tabasco sósu: Alls konar harðfiskur fyrir útileguna Matur Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Lífið Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Lífið Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Lífið Fleiri fréttir Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Felix kveður Eurovision með tárum Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Sjá meira