Þorbjörg Helga vill auglýsa stöðuna 16. október 2010 19:28
Tillaga um að breyta starfi skrifstofustjóra Reykjavíkurborgar og auka völd hans verður tekin til umfjöllunar eftir helgi. Starfið verður ekki auglýst, þrátt fyrir að um eitt valdamesta embætti í borginni sé að ræða. Það er yfirlýst markmið Besta flokksins og Samfylkingarinnar að auglýsa öll störf. Tillaga meirihluta Besta flokks og Samfylkingarinnar um breytingu á starfi skrifstofustjóra borgarstjóra var afgreidd úr borgarráði á miðvikudag og fer fyrir borgarstjórn á þriðjudag. Málið snýst um að auka völd skrifstofustjóra, Regínu Ásvaldsdóttur þannig að algjör eðlisbreyting verði á störfum hennar tímabundið, eða í eitt ár og henni falið verkstjórnarvald. Starfið verður ekki auglýst, þrátt fyrir yfirlýsingu Besta flokksins og Samfylkingarinnar um að auglýsa öll störf hjá borginni. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru skiptar skoðanir meðal borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um tillöguna. Íhaldssami armur borgarstjórnarflokksins er á móti þessu, en því hefur verið haldið fram að verið sé að búa til nýjan borgarstjóra. Einhverjir eru mildari í afstöðu sinni til tillögunnar.Þriðja starfið sem meirihlutinn auglýsir ekki Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í stjórnkerfisnefnd borgarinnar, gagnrýnir að staðan sé ekki auglýst þar sem um nýtt starf sé að ræða. „Okkur finnst það afdráttarlaust að það eigi að auglýsa þetta starf. Þetta er þriðja starfið sem Besti flokkurinn og Samfylkingin auglýsa ekki og eru með tímabundið í ár. Þetta er það stórt starf og óskilgreint í augnablikinu að okkur finnst að það eigi skilyrðislaust að auglýsa það." Þorbjörg segir ennfremur: „Það kemur ekki á óvart að borgarstjóri sé að breyta þessari stöðu. Hann hefur ítrekað sagt að það sé of mikið hjá honum, hann valdi ekki þessu starfi og vilji breyta þessu. Það sem kemur á óvart að þetta starf er ígildi stöðu borgarstjóra." Þau svör fengust hjá fulltrúum Besta flokksins í dag að ekki væri um nýtt starf að ræða. Verið væri að breyta starfi skrifstofustjóra tímabundið í eitt ár og því ekki um nýja stöðu að ræða.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir „Það þarf ekki nema einn sígarettustubb til þess að kveikja í öllu“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira