Lífið

Sótreiður Simon

Simon Cowell. MYND/Cover Media
Simon Cowell. MYND/Cover Media

Simon Cowell, 50 ára, er brjálaður eftir að keppendur í The X Factor raunveruleikaþættinum skemmdu lúxusvilluna hans á Spáni um helgina.

Bresku keppendurnir, sem Simon leyfði að gista í lúxusvillunni sinni á Marbella, kláruðu rándýrt kampavín kappans og sér innfluttan bjór sem hann geymdi fyrir sig persónulega í húsinu.

Ekki nóg með það, heldur skemmdu keppendur líka rándýrt teppi og húsgögn eftir heimsfræga hönnuði sem voru eftir partí helgarinnar öll meira og minna þakin drullu, salti og sandi.

„Fyrsti tékkinn sem þau fá eftir keppnina fer í að greiða upp skemmdirnar á því leikur enginn vafi," sagði Simon brjálaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.