Ágústa Eva við hlið Péturs í nýjum sjónvarpsþætti 31. ágúst 2010 10:30 Ágústa Eva leikur eitt aðalhlutverkanna í Hlemmavídeó með Pétri Jóhanni Sigfússyni og Vigni Rafni Valþórssyni. „
Ég hef aldrei leikið á móti Pétri Jóhanni áður og það er alveg ótrúlega gaman að vinna með honum," segir Ágústa Eva Erlendsdóttir. Hún mun leika aðalhlutverkið á móti áðurnefndum Pétri í nýrri gamanþáttaröð sem verður sýnd á Stöð 2 í haust. Ágústa mun leika dularfulla konu sem keyrir út Sóma-samlokur en á sér annað og eilítið öðruvísi líf utan vinnutímans. Auk Ágústu hefur Vignir Rafn Valþórsson verið ráðinn til að leika starfsmann Hlemmavídeós sem þættirnir snúast um en persóna hans verður hálfgert hjarta leigunnar. Leikhópurinn hefur hist nokkrum sinnum og æft en eins og Fréttablaðið hefur greint frá stendur einvalalið að handritinu; Sigurjón Kjartansson, María Reyndal, Ari Eldjárn, Hugleikur Dagsson og Pétur Jóhann. Þá hefur Styrmir Sigurðsson verið fenginn til að leikstýra þáttaröðinni en hann gat sér gott orð fyrir fyrstu Fóstbræðra-seríuna sem var frumsýnd 1997. Ágústa og Pétur hafa þó komið við sögu í sömu myndinni án þess að leika saman; Ágústa lék yngri útgáfuna af Bjarnfreði í kvikmyndinni Bjarnfreðarson. Ágústa segir sér lítast mjög vel á þættina en vill ekki gefa of mikið upp um sína eigin persónu, það kæmi til með að ljóstra of miklu upp um framvinduna. Ágústa segist annars hafa eytt sumrinu í frí. „Ég fór bara hringinn í kringum landið og svo hef ég bara verið að lemja í púða hjá Mjölni," segir Ágústa en dálæti hennar á bardagaíþróttum hefur vart farið fram hjá neinum. „Ég gerði alveg rosalega mikið af þessu fyrir kvikmyndina Borgríki og hef bara haldið áfram síðan þá," útskýrir Ágústa og vísar þar í myndina Borgríki eftir Ólaf Jóhannesson. „Hún er í klippingu núna og verður frumsýnd á næsta ári." Ágústa verður raunar nokkuð áberandi því kvikmyndin Kurteist fólk eftir sama leikstjóra með Stefáni Karli verður frumsýnd seint á þessu ári. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira