Lífið

Mótleikarinn kynþokkafullur

Julia Roberts. MYND/Cover Media
Julia Roberts. MYND/Cover Media

Leikkonan Julia Roberts, 42 ára, segir að spænski mótleikari hennar í kvikmyndinni Eat, Pray, Love, Javier Bardem, sé það kynþokkafullur að hún hafi ekki getað tekið augun af honum á meðan á tökum stóð.

Julia viðurkennir að hún varð óttaslegin þegar hún sá Javier í fyrsta sinn því henni þótti hann ógnvekjandi í útliti. En þegar þau byrjuðu að vinna saman fór kynþokki hans ekki fram hjá henni.

Á meðan á tökum stóð var hann umvafinn kvenkyns starfsfólki en Javier er rómaður fyrir að vera gentilmaður og sjarmör. 

„Hann er svo mikið ljúfmenni. Alveg yndisleg manneskja. Konur standast hann ekki," sagði Julia.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.