Lostavél Franks Hvam fær framtíðarheimili á Jolene 26. nóvember 2010 08:45 „
Ég er búin að stilla vélinni upp á Jolene. En ég er auðvitað búinn að skrúfa plexigler fyrir gatið góða svo að menn séu ekki endilega að prófa hana," segir Dóra Takefusa, eigandi barsins Jolene í Kaupmannahöfn. Hápunktur sjónvarpsþáttaraðarinnar Mér er gamanmál, sem var sýnd í haust, var tvímælalaust þegar danski grínistinn Frank Hvam leiddi þáttastjórnandann Frímann Gunnarsson út í skúr þar sem hann geymdi heimasmíðaða tottvél; Frank Hvams Blow Job maskine. Vélin var að sjálfsögðu hluti af gríni þáttarins og Hvam fékk að eiga hana þegar tökum lauk. „Hann var með vélina á skrifstofunni sinni. Svo varð umboðskona hans ólétt og vélin fór í taugarnar á henni, þannig að hann hringdi í mig og spurði hvort ég vildi fá hana niður á Jolene," segir Dóra. Hún játar að vélin hafi vakið mikla athygli á Jolene. „Auðvitað. Það er ekki svona vél á hverjum bar. En svo það sé alveg á hreinu, þá virkar vélin að sjálfsögðu ekki. Hún var bara gerð fyrir þáttinn." Ragnar Hansson, leikstjóri Mér er gamanmál og bróðir Gunnars Hanssonar, sem leikur Frímann Gunnarsson, er hugmyndasmiður vélarinnar. Hugmyndina fékk hann fyrir mörgum árum, en hann vissi ekki hvað hann ætti að gera við hana. „Ég hafði gengið með þessa hugmynd í maganum mjög lengi og sá fyrir mér að vélin yrði arfleifð mín," segir Ragnar. „Ég vildi að það væri tottvél á hverju götuhorni, eða allavega inni á klósettum á skemmtistöðum. Ég sá að það myndi draga úr ofbeldi og ótímabærum barneignum." Ragnar fagnar því að vélin sé komin á framtíðarheimili í Danmörku, en hún var smíðuð þar af danska listamanninum Lauge Falkentorp. Ragnar er þakklátur Hvam fyrir að koma hugmyndinni á framfæri, enda fór hún ekki á flug fyrr en hann setti nafn sitt við hana. „Eins og með George Foreman-grillið. Hann fann það ekki upp, en strax og hann setti nafnið sitt á það fór það á flug," segir Ragnar. „Í raun má segja að hugmyndin sé komin hringinn því vélin er komin á skemmtistað." Þáttaröðin Mér er gamanmál kom út á DVD í gær og Ragnar lofar því að aukaefnið sýni áður óþekkta virkni vélarinnar. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Tónlist Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Fleiri fréttir Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Sjá meira