Kræklingaræktin skilar peningum 25. apríl 2010 19:40 Kræklingar eru farnir að skila peningum i kassann.
Kræklingaræktin er loks eftir tíu ára þróunarstarf farin að skila stórum peningum, segja ráðamenn Norðurskeljar í Hrísey, sem flytja nú meira út í hverri viku en þeir gerðu allt árið í fyrra, og hafa ekki undan pöntunum. Hjá Norðurskel byrjuðu menn fyrir áratug að prófa sig áfram kræklingarækt og þeir eru komnir lengst allra hérlendis í þessari nýju atvinnugrein, sem virðist lofa mjög góðu. Fyrirtækið er nú búið að setja upp vinnslu í Hrísey og kaupa tvo nýja báta. Átta manns eru komnir í vinnu og nauðsynlegt að ráða fleiri því það er brjálað að gera, að sögn Gísla Rúnars Víðissonar vinnslustjóra. Kræklingurinn, eða bláskelin, er flutt lifandi út í skelinni til kaupenda með skipum og flugvélum. Milli 2.500 og 3.000 kíló fara nú út í hverri viku, aðallega til Belgíu, en kaupandi þar vill fá 6.000 kíló á viku, þannig að Norðurskel annar hvergi nærri eftirspurn. „Þetta þýðir að peningarnir streyma inn, við erum rétt að byrja núna að sjá stóra peninga," segir Gísli Rúnar, en tekur fram að það sé loks að gerast eftir tíu ára þróunarstarf. Fjöldi annarra aðila víða um land, sem einnig eru komnir af stað, hafa leitað ráðgjafar hjá Norðurskel og er því spáð að kræklingarækt geti á næstu árum skapað mörghundruð ný störf hérlendis.
Mest lesið Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Innlent „Þetta var rétt ákvörðun“ Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Innlent Dagný Ósk látin Innlent Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Innlent Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Innlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Fleiri fréttir „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið Annað innbrotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Rokið, haustlitir og lauf út um allar trissur Fjöldi sjálfsvíga svipaður og fyrri ár Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Tilkynningar um heimilisofbeldi milli foreldra og barna tvöfaldast 350 milljóna tekjur Þingvalla í húfi vegna náttúrupassa Dapurlegt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Bókun 35 og óveður setur strik í reikninginn Pallborðið í heild sinni: Klukkan tifar og staðan viðkvæm Rúta með skólabörn um borð fór út af veginum Þakplötur og trampólín á flugi Sjá meira