Bráðsmitandi veiruskita herjar á kýr 12. maí 2010 03:15 Sýkingar hefur orðið vart á Norðurlandi og Austurlandi. Sjaldgæft er að kýr drepist vegna sjúkdómsins.
Veiruskita í kúm hefur komið upp á nokkrum bæjum á Austurlandi og Norðurlandi á síðustu vikum. Veiruskita er mjög smitandi en ekki er vitað með vissu um hvaða veiru er að ræða. Þegar hún berst í fjós smitast flestar kýr sem ekki hafa smitast áður. Sjaldgæft er að kýr drepist vegna sjúkdómsins en afleiðingar hans geta verið alvarlegar og langvarandi þar sem sjúkdómurinn veikir ónæmiskerfi kúnna þannig að þær verða viðkvæmari fyrir öðrum sjúkdómum, meðal annars júgurbólgu og öðrum bakteríusýkingum. Kýr sem veikjast falla verulega í nyt á meðan þær eru veikar og komast sjaldan í fulla nyt aftur á yfirstandandi mjaltaskeiði. Sjúkdómurinn hefur einnig neikvæð áhrif á frjósemi þeirra. Auður Lilja Arnþórsdóttir, sóttvarnadýralæknir hjá Matvælastofnun, segir mjólk úr sýktum kúm neysluhæfa og pestin smitist ekki í fólk. Einkenni veiruskitu svipar til einkenna sjúkdóms sem er vel þekktur erlendis og kallast „winter dysenteri“. Sá sjúkdómur smitast með saur og slími frá nösum. Smit berst mjög auðveldlega með fólki, dýrum og ýmsum hlutum, Oftast smitast allir næmir gripir á búinu á nokkrum dögum og sjúkdómurinn gengur yfir á einni til tveimur vikum.- jss
Mest lesið Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetingar Erlent Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Erlent Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Innlent Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa Erlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Fleiri fréttir Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Sjá meira