Innlent

Landnámsdýr gleðja börnin

Kiðlingar vöktu mikla lukku við opnun dýragarðsins.
Kiðlingar vöktu mikla lukku við opnun dýragarðsins.
„Það er mikilvægt að gefa börnum færi á návist við dýrin, sérlega ungviðið. Þetta er einn af þeim þáttum sem mun framvegis gera lífið litríkara hér í Reykjanesbæ,“ sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, þegar lítill húsdýragarður var opnaður í Víkingaheimum í Innri-Njarðvík á laugardag.

Kálfar, lömb, kiðlingar, landnámshænur, geitur og kanínur voru meðal þeirra dýra sem hægt var að skoða í garðinum. Garðurinn var opnaður í tilefni Barnahátíðar í Reykjanesbæ en verður framvegis opinn yfir sumarmánuðina. - jma



Fleiri fréttir

Sjá meira


×