Viktor fékk viðurkenningu 9. apríl 2010 06:00 Viktor Smári fékk viðurkenningu fyrir heiðarlega viðskiptahætti í endursölu listaverka. fréttablaðið/vilhelm
Samtökin Myndstef hafa veitt Viktori Smára Sæmundssyni viðurkenningu fyrir heiðarlega viðskiptahætti við endursölu listaverka. Þetta er í fyrsta sinn sem viðurkenningin er veitt. Með veitingu viðurkenningarmerkis til listaverkasala hyggst Myndstef leitast við að greina á milli þeirra sem stunda viðskiptin með löglegum og heiðarlegum hætti og hinna sem fara ekki að reglum og draga sér með ólögmætum hætti fjármuni sem tilheyra listamönnunum. Myndstef eru samtök íslenskra myndhöfunda á sviði höfundarréttar. „Það er virkilega ánægjulegt að vera fyrstur til að fá þessa viðurkenningu,“ segir Viktor Smári, sem rekur Studio Stafn í Ingólfsstræti. „En í raun og veru ætti svona viðurkenning að vera óþörf því þetta fylgiréttargjald er bundið í lög og reglugerðir.“ Samkvæmt höfundalögum ber þeim aðilum sem starfa við endursölu á listaverkum að skila fylgiréttargjaldi af hverri sölu til Myndstefs og samtökin sjá um að koma þeim peningum til viðeigandi listamanna. Gjaldið var fyrst sett á með lögum á níunda áratug síðustu aldar en þá felldi Alþingi jafnframt niður söluskatt, síðar virðisaukaskatt, af þessum verkum. Þetta var gert til þess að örva listaverkamarkað á Íslandi. Misbrestur hefur verið á skilun fylgiréttargjalda um árin. Má þar minnast stóra málverkafölsunarmálsins auk þess sem Myndstef kærði Gallerí Fold á síðasta ári fyrir vanskil á fylgiréttargjöldum og var upphæð stefnunnar 21 milljón króna. Hópur myndlistarmanna mótmælti í kjölfarið starfsháttum Gallerí Foldar. „Eins og staðan hefur verið er ólíðandi fyrir aðra á markaðnum sem standa við sitt að fyrirtæki komist upp með að innheimta þessi gjöld en standa ekki skil á þeim,“ segir Viktor. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Í festival gír með Icewear Lífið samstarf Fleiri fréttir Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Sjá meira