Hátíð fyrir þroskaða rokkara 9. apríl 2010 08:00 Sigurður verður fararstjóri á rokkhátíðina High Voltage Festival sem verður haldin í London í sumar. fréttablaðið/stefán „
Þetta er í rauninni klassískt rokk-festival," segir Sigurður Sverrisson. Hann verður fararstjóri í hópferð fyrir um tuttugu íslenska rokkaðdáendur á High Voltage-hátíðina í London sem verður haldin í fyrsta sinn í júlí. Þar ber hæst tónleika Emerson, Lake og Palmer sem er beðið með mikilli eftirvæntingu því rokktríóið heldur upp á fjörutíu ára afmælið sitt með miklu sjónarspili á þessum tónleikum. Á meðal annarra hljómsveita á hátíðinni verða ZZ Top, Heaven & Hell, Uriah Heep, Foreigner, Quireboys, Marillion og Gary Moore. Sigurður segir hátíðina stórkostlegt tækifæri fyrir þroskaða rokkaðdáendur á öllum aldri. „Þessi bönd hafa fylgt manni frá fermingu. Ég efa að það gefist mörg fleiri tækifæri til að sjá Emerson, Lake og Palmer og mér segir svo hugur að óðum styttist í að Ronnie James Dio (Heaven & Hell) dragi sig í hlé," segir Sigurður. „Það er svo auðvitað frábært að fá tækifæri til að ná á einu bretti mörgum þeirra hljómsveita sem hafa glatt rokkunnendur undanfarna áratugi. Ég hugsa að líta megi á þessa hátíð sem „lokaútkall" á nokkrar hljómsveitir." Meðlimir Heaven & Hell eru nákvæmlega þeir sömu og spiluðu undir merkjum Black Sabbath í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi fyrir um tuttugu árum. Sigurður skipulagði einmitt þá tónleika. „Þetta verður vonandi ódýrara en síðast. Það voru dýrustu aðgöngumiðar í sögunni. Ég held ég hafi verið í þrjú ár að borga það niður," segir hann. Miðaverð í hópferðina er 119.900 krónur og nánari upplýsingar má finna hjá ÍT-ferðum eða á sigsve@simnet.is. - fb
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana Tónlist Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Fleiri fréttir „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Sjá meira