Traustur lagagrunnur fyrir afskriftum lána 1. maí 2010 07:00 Tæplega 50.000 heimili tóku bílalán í erlendri mynt. Lánin gætu lækkað um þriðjung verði hugmyndir félagsmálaráðherra að veruleika. „
Við teljum að það sé traustur lagalegur grundvöllur til að taka á þessu máli,“ segir Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra og vísar til frumvarps til laga um skyldu lánveitenda til þess að færa niður höfuðstól bílalána. Ráðherrann greindi frá því í gær að Alþingi hefði heimilað honum að leggja frumvarpið fyrir þingflokka stjórnarflokkanna. Ólöf Nordal, Sjálfstæðisflokki, spurði Árna Pál hvernig hann ætlaði að bregðast við kröfuhöfum ef til þess kemur að lög verði sett um niðurfærslu lánanna. „Þetta hvílur mjög þungt á mörgum heimilum,“ sagði Ólöf og spurði um stöðu málsins og sagði að ráðherrann hefði talað „ansi fjálglega“ um það. Árni Páll sagðist hafa verið í sambandi við eignaleigufyrirtækin „um eðlilega umbreytingu lánanna“. Fyrirtæki og skuldarar þurfi að skipta með réttlátum hætti milli sín því tjóni sem varð vegna hruns krónunnar. Íslandsbanki hafi tekið vel í hugmyndirnar og Lýsing kanni nú svigrúm sitt til afskrifta hjá Fjármálaeftirliti og Seðlabanka. Ólöf sagði að aðgerðum stjórnvalda fylgdi hætta á gjaldþroti ákveðinna fjármögnunarfyrirtækja. Best væri að ná samkomulagi, lög gætu leitt til hárra skaðbótakrafna á íslenska ríkið. Árni Páll sagði það flækja málið að lánafyrirtækin eru veikburða og standa ekki undir afskriftum nema þeirra kröfuhafar taki tillit til þess og slái af sínum kröfum. Hann tók undir að veruleg hætta væri á skaðabótakröfum yrði ekki rétt gengið frá málinu í upphafi. Lánafyrirtækin þyrftu þó að sanna tjón og óvíst væri að þeim tækist það ef þau ætli að halda því til streitu að hafa kröfur sínar upp í topp og gangast ekki við eigin áhættu. „Það er auðvitað ekki þannig að við getum byggt endurreisnina á fjármálafyrirtækjum og eignaleigufyrirtækjum sem eru með svo veikan eiginfjárgrunn að þau eigi ekki val á nokkurri annarri markaðshegðun en að mergsjúga viðskiptavini sína,“ sagði ráðherrann. „Þau verða að geta tekið á sig eðlilegan kostnað af umbreytingu skulda.“ Gangi hugmyndir félagsmálaráðherra eftir gætu bílalán lækkað um allt að þriðjung. peturg@frettabladid.is ólöf Nordal
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent