Get him to the Greek: tvær stjörnur 10. júní 2010 00:01 Myndin er með tærnar svona um það bil 1000 kílómetrum á eftir The Hangover sem er skothelt dæmi um vel heppnað flipp eins.
Rokk og ruglBíó ** Aðalhlutverk: Russell Brand og Jonah Hill Leikstjóri: Nicholas StollerAldous Snow er svakalega vinsæl poppstjarna. Eiginkona hans er jafnvel enn vinsælli söngkona og saman tróna þau á toppi tilverunnar, glysgjörn og svona mátulega vitgrönn eins og gengur og gerist með frægt tónlistarfólk. Aldous fer þó fyrir rest flatt á ofmetnaðnum þegar hann gefur út skelfilega lélega plötu sem snarlækkar gengisvísitölu hans.Glyshjónin gefast í kjölfarið upp á sjö ára edrúmennsku, skilja og henda sér á kaf í dóp og brennivín, hvort í sínu lagi. Eiginkonan fyrrverandi gerist auk þess vergjarnari og tíðari gestur á forsíðum slúðurblaða fyrir val sitt á rekkjunautum en Paris Hilton á meðan Aldous hangir heima á Bretlandi og drekkur og djammar í skjóli fornrar frægðar.Líða nú ein tíu ár og Aldous er enn við sama heygarðshornið. Þá fær gamall aðdáandi Aldousar, meinleysisgrey og minnipokamaður, þá frábæru hugmynd að setja upp afmælis og endurkomutónleika Aldousar í Los Angeles. Þetta geti skilað útgáfufyrirtækinu fúlgum fjár í endurútgáfum og öðru tilheyrandi.Fyllibyttan í London fellst á að halda tónleikana og ræfillinn sem fékk hugmyndina að endurreisninni er sendur til Englands að sækja fallna goðið og koma því á tónleikana í tæka tíð.Þetta er auðvitað ekki heiglum hent enda er alkunna að dópistar og fyllibyttur í neyslu eru upp til hópa óþolandi fólk sem ekki nokkur leið er að eiga við. Blessaður lúðinn sogast því á methraða inn í rokklíferni Aldousar og er farinn að dópa og standa í kynlífi með sexbombum á almenningssalernum alveg á einu augabragði.Hver uppákoman rekur svo aðra á ferð vitleysinganna tveggja frá London til Los Angeles og myndin öll er ein samhengislítil runa misfyndinna brandara. Sem væri svo sem í góðu lagi ef brandararnir væru góðir en því er nú ekki fyrir að fara. Þetta er mynd sem maður fer í gegnum hálfglottandi og getur með góðum vilja og jákvæðu hugarfari hlegið upphátt svona tvisvar til þrisvar sinnum.Aðalleikararnir Jonah Hill og Russell Brand eru hins vegar ákaflega sjarmerandi og skemmtilegir og fleyta myndinni ansi langt með sameiginlegu átaki. Hill er sannfærandi og brjóstumkennanlegur lúði og Brand er helvíti hress og skemmtilegur í hlutverki rokkaraklisjunnar frá helvíti. Þó hallar aðeins undan fæti þegar fábjáninn Aldous tekur óvæntan andlegan þroskakipp undir lokin. Ósköp kunnuglegur og útjaskaður endahnútur á þroskasögum aumingja og frekar átakanlegur að þessu sinni enda Brand miklu sleipari í léttu flippi heldur en dramatískum uppgjörum.Einhverra hluta vegna hefur samt sá misskilningur fengið vængi að Get Him to the Greek sé fyndnasta mynd sumarsins ef ekki ársins hingað til. Þetta stenst enga skoðun þótt þetta sé svo sem allt í lagi og enginn muni drepast úr leiðindum yfir brölti þeirra félaga.Niðurstaða: Miðlungsfyndin gamanmynd sem flýtur á skemmtilegum aðalleikurum og nokkrum velheppnuðum bröndurum. Bærileg en auðgleymanleg skemmtun sem er með tærnar svona um það bil 1000 kílómetrum á eftir The Hangover sem er skothelt dæmi um vel heppnað flipp eins og þessa mynd langar greinilega til að vera.Þórarinn Þórarinsson
Mest lesið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Hjartað slær í Hafnarfirði: „Við erum búin að sprengja það alveg utan af okkur“ Tónlist Greta Salóme á von á sínu þriðja Lífið Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Lífið Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Lífið Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Lífið Sindri gerðist trukkabílstjóri Lífið Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Lífið Bylgjulestin mætir á Hjarta Hafnarfjarðar á laugardag Lífið samstarf Fleiri fréttir Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Sjá meira