Ræktuðu kartöflur á húsþaki 1. september 2010 00:01 Grænir fingur Anna Hrund Másdóttir bjó til matjurtagarð á húsþaki við Hverfisgötu ásamt vinkonu sinni, Sigríði Tulinius. Mikil uppskeruhátíð var haldin um síðustu helgi. Fréttablaðið/Arnþór „
Ég og Sigríður Tulinius, fyrrum bekkjarsystir mín úr Listaháskólanum, bjuggum til lítinn garð fyrir framan gallerí Kaffistofu við Hverfisgötu í fyrrasumar. Það verkefni vatt upp á sig og við sóttum um styrk frá Evrópu unga fólksins til að gera matjurtagarð á þaki gallerísins sem væri opinn almenningi," segir Anna Hrund Másdóttir, listakona. Þær stöllur komu upp myndarlegum matjurtagarði á húsþaki við Hverfisgötu í sumar og ræktuðu þar meðal annars kál, kartöflur og kryddjurtir. Anna Hrund segir nágranna Kaffistofunnar hafa tekið vel í verkefnið og nýttu nokkrir aðstöðuna til að rækta eigið grænmeti. „Nágrannarnir tóku mjög vel í þetta og pössuðu vel upp á garðinn þannig að hann fékk alveg að vera í friði fyrir skemmdarvörgum. Í kjölfarið kynntumst við líka nágrönnum gallerísins betur og það var mjög jákvætt. Fólk hefði samt mátt nota garðinn meira, en það breytist kannski í framtíðinni." Um síðustu helgi var haldin uppskeruhátíð og buðu stúlkurnar þá nágrönnum sínum, vinum og vandamönnum í bragðgóða grænmetissúpu sem löguð var úr heimaræktuðu grænmeti. Innt eftir því hvort þær hyggist endurtaka leikinn að ári liðnu segist Anna Hrund ekki viss. „Það fer náttúrulega mikill tími í að hugsa um svona garð, það þarf að vökva hann á hverjum degi og sjá um plönturnar. Ég vona frekar að við séum búnar að sá fræjum í huga fólks og að aðrir taki sig til og geri svona garða sjálfir. En maður veit aldrei, ég væri alveg til í að gera tilraun til þess að rækta eplatré næsta sumar." - sm
Mest lesið Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Lífið Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið Lífið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Lífið Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Lífið Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Lífið Stefnir með sjö fjölskyldum aftur á Unglingalandsmótið Lífið samstarf Myndaveisla: Götubitinn í Hljómskálagarðinum Lífið samstarf Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Lífið „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Lífið Feimnin við að rukka: Ekki treysta á „ég borga þetta og þú næsta“ Áskorun Fleiri fréttir Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Sjá meira