Lífið

Skrifar hrylling í fæðingarorlofi

Nanna Kristín nýtir fæðingarorlofið í að skrifa handrit eftir bók Steinars Braga en það er kannski ekki fyrsta skáldverkið sem fólki dettur í hug að láta nýbakaðar mæður lesa.Fréttablaðið/Valli
Nanna Kristín nýtir fæðingarorlofið í að skrifa handrit eftir bók Steinars Braga en það er kannski ekki fyrsta skáldverkið sem fólki dettur í hug að láta nýbakaðar mæður lesa.Fréttablaðið/Valli

„Ég skrifaði fyrsta uppkastið í sumar, þá kasólétt og maður er jú aldrei viðkvæmari en einmitt þá. En bókin fjallar líka um konur og maður er aldrei meiri kona en með nýfætt barn,“ segir Nanna Kristín Magnúsdóttir leikkona.

Hún hefur skrifað uppkast að kvikmyndahandriti eftir bók Steinars Braga, Konur, sem hlaut einróma lof gagnrýnenda árið 2008. Bókin þótti líka dökk og næstum hryllileg og Nanna Kristín viðurkennir að það hafi tekið svolítið á að skrifa handritið. „Ætli ég komi ekki með þetta kvenlega „touch“ á þetta. Annars gaf Steinar Bragi mér ákveðið frjálsræði.“

Nanna Kristín er nú í fæðingarorlofi, sem er einmitt tíminn þegar flestar mæður svífa um á bleiku skýi yfir nýjasta fjölskyldumeðlimnum. Leikkonan hyggst hins vegar nýta sitt fæðingarorlof í að skrifa næsta uppkast að handritinu eftir þessari bók sem Páll Baldvin, þáverandi gagnrýnandi Fréttablaðsins, lýsti þannig að hún kæmi á endanum illa við sálartetrið og ekki síður líkamlega við lesendur. „Ottó Geir Borg ætlar að vinna þetta með mér og við gerum þetta í sameiningu, það er kominn styrkur frá Kvikmyndamiðstöðinni en ekki leikstjóri,“ segir Nanna Kristín en það er framleiðslufyrirtækið ZikZak sem á kvikmyndaréttinn að bókinni.

 

Nanna Kristín hefur verið ein af fremstu leikkonum þjóðarinnar undanfarið og hún kveðst ekki alveg vera búin að leggja leikaraskóna á hilluna þótt hún einbeiti sér nú að skrifum. „Þegar maður er kasólétt leikkona eru hlutverkin ekkert á hverju strái. Og eftir kvikmyndirnar Börn og Foreldra langaði mig meira að skrifa og framleiða. Ég fékk bakteríuna endanlega þegar ég vann með Valdísi Óskarsdóttur að Sveitabrúðkaupi og Kóngavegi.“- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.