Samningsvilji bjargar HM-sumri knattspyrnufíkilsins 11. júní 2010 14:30 Hafliði Kristinsson segir að það sé ekki ávísun á gott HM ef annar aðilinn kýs að eyða tímanum með vinum á barnum. Best sé að menn haldi sig heimavið, fjarri áfenginu.
Samningsvilji er allt sem þarf til að gera HM-veisluna bærilega fyrir alla fjölskylduna. Þetta segja tveir fjölskylduráðgjafar en heimsmeistarakeppnin í fótbolta hefst í dag með tilheyrandi beinum útsendingum frá kappleikjunum. Alls verða 64 leikir sýndir í beinni útsendingu á RÚV og Stöð 2 Sport og því má búast við miklu áreiti á þá fjölskyldumeðlimi sem engan áhuga hafa á knattspyrnu. Að sögn Önnu Sigurbjargar Sigurðardóttur og Hafliða Kristinssonar, sem bæði eru sálfræðingar og sinna hjónabandsráðgjöf, þá fer útkoma HM-veislunnar mikið eftir því hvernig fjölskyldan er innstillt. „Þetta er ekki mikið vandamál ef allir í fjölskyldunni hafa áhuga," segir Hafliði og undir það tekur Anna Sigurbjörg. „HM gæti á þeim heimilum verið kærkomið tækifæri til að sameina alla fjölskylduna og gleyma öllum leiðindum," segir hún. En þetta gæti skapað ákveðna togstreitu ef aðeins annar aðilinn er áhugasamur. Hafliði bendir á að afsökunin að þetta sé aðeins á fjögurra ára fresti haldi lítið, enski boltinn og meistaradeildin hafi verið í gangi allan veturinn þannig að þau rök falli um sjálf sig. „Þetta snýst líka mikið um hvers konar menning er í kringum þetta, ef þetta snýst um vini og bjórdrykkju þá er það eiginlega vandinn, vinirnir og drykkjan," segir Hafliði og bendir jafnframt á að samningsvilji beggja aðila sé allt sem þarf. „Menn geta valið sér eitt lið og fylgst með því. Menn eru að biðja um einhverjar fórnir af hálfu hins aðilans en ef fólki tekst að semja og eitthvað annað kemur á móti þá á þetta ekki að vera neitt vandamál. Svo getur fólk líka búið til skemmtilega stemningu í kringum þetta," segir Hafliði. Anna Sigurbjörg segir mestu erfiðleikana vera fólgna í því ef menn gangi fram og taki tíma fyrir þetta áhugamál eins og ekkert sé sjálfsagðara. Og hún bendir HM-fíklunum á að þráðurinn sé ögn styttri í fólki núna en áður vegna álagsins af efnahagshruninu. „Ef mönnum finnst þeir hafa sjálfkrafa rétt á þessu þá eru þeir að valta yfir hinn aðilann," segir Anna. Áhugamenn um HM þurfi því að vera tilbúnir að slá af sínum kröfum. „Það er mjög mikilvægt að menn forgangsraði og pæli svolítið í því hverju þeir vilji alls ekki missa af og hverju þeir telji sig geta misst af," segir Anna. Mikilvægast sé hins vegar að fólk tali saman um hvernig þessu skuli háttað. „Fólk er oft með í maganum af því að þessir hlutir hafa ekkert verið ræddir og það veit ekki hverju það á að kvíða."
Mest lesið Hjartað slær í Hafnarfirði: „Við erum búin að sprengja það alveg utan af okkur“ Tónlist Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Lífið Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Lífið Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Lífið Sindri gerðist trukkabílstjóri Lífið Greta Salóme á von á sínu þriðja Lífið Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Lífið Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Getur siðblinda frá afanum dúkkað upp hjá barnabörnum? Áskorun Konungur retróleikja slekkur á straumum: „Ég vissi ekki að maður gæti fengið borgað fyrir þetta“ Leikjavísir Fleiri fréttir Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Sjá meira
Konungur retróleikja slekkur á straumum: „Ég vissi ekki að maður gæti fengið borgað fyrir þetta“ Leikjavísir
Konungur retróleikja slekkur á straumum: „Ég vissi ekki að maður gæti fengið borgað fyrir þetta“ Leikjavísir