Lífið

Madonna fær lánuð föt hjá Lourdes

Madonna og Lourdes. MYND/Cover Media
Madonna og Lourdes. MYND/Cover Media

Madonna, 52 ára, fær lánuð föt hjá dóttur sinni, Lourdes, 13 ára, ef marka má það sem Lourdes segir við fjölmiðla.

Mæðgurnar hafa hannað saman og markaðssett eigin fatalínu sem ber heitið Material Girl.

Lourdes hefur stolist í fataskáp móður sinnar alveg síðan hún var krakki en í dag er það mamma hennar, Madonna, sem fær lánuð föt hjá henni.

„Guð minn góður já alltaf!" svaraði Lourdes spurð hvort hún hafi fengið lánuð föt hjá mömmu sinni.

„Í dag er það hún sem fær lánuð fötin mín," bætti hún við en tekur það fram að þær nota ekki lengur sömu skóstærð því Madonna notar minni skó en Lourdes.

Fatalína mæðgnanna fæst í Macy´s verslununum í Bandaríkjunum. Um er að ræða alhliða fatnað, skó, töskur og skartgripi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.