Vill að Lourdes sé íhaldssamari 1. apríl 2010 03:45 Madonna og Lourdes er ákaflega samrýmdar þótt söngkonan vilji að dóttirin klæðist ögn íhaldssamar.
Bandaríska söngkonan Madonna kastaði heldur betur steinum úr glerhúsi í nýju viðtali við US Weekly. Madonna hefur oft verið þekkt fyrir að klæðast fremur óhefðbundnum, eggjandi og efnislitlum klæðnaði en í umræddu viðtali sagðist hún vilja að dóttir sín, Lourdes, myndi klæða sig ögn íhaldsamar. „Hversu kaldhæðnislegt er það?,“ sagði Madonna og virtist gera sér grein fyrir því að þetta væri ekki eitthvað sem hún hefði efni á. Madonna og Lourdes eru búnar að hanna saman fatalínu sem ber hið skemmtilega heiti Material Girl. Og mamman viðurkennir að hún sé ekki alltaf sátt við fatarvalið. „Hún fær sínar hugmyndir úr danstímum, frá Evrópu og hljómsveitum sem hún hlustar á. Hún mætir á tökustaði hjá mér og setur saman einhverja múnderingu. Og það er alveg sama hverjir eru að hanna fötin, hvort sem það er Marc Jakobs eða Stella McCartney, þau spyrja hana alltaf að því hvað henni finnst,“ útskýrir Madonna og augljóst að Lourdes hefur munninn fyrir neðan nefið þegar tíska er annars vegar. Og Madonna upplýsir að þegar hún hafi hannað línu fyrir H&M þá hafi það í raun og veru verið Lourdes sem hafi unnið mestu vinnuna. „Ég kunni alveg ágætlega við starfið en þetta var ekki eitthvað sem mig langaði til að hella mér útí. Í raun og veru var það Lourdes sem gerði allt, hún er þrettán ára orkubolti og vildi alltaf vera að. Ég sat bara útí horni og lék mér í BlackBerry-símanum.“
Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Fleiri fréttir Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leikhluta Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Sjá meira