Kettir hverfa einn af öðrum í Mosfellsbæ 5. maí 2010 06:00 Kristín Jónasdóttir og Frímann Lúðvíksson Buch. Frá því að Frímann tvíbraut á sér fót og handleggsbrotnaði í mótorhjólaslysi hefur hann látið fara vel um sig í kjallaranum í Brattholti. Kettirnir sem eftir eru una sér vel með eigendum sínum og hundunum þeirra.Fréttablaðið/Stefán „
Ég hef ekki aðra kenningu en þá að það hljóti að vera einhver sem er hreinlega að drepa þessa ketti," segir Frímann Lúðvíksson Buch, sem missti fjóra ketti af heimili sínu á aðeins einni viku. Frímann tvífótbrotnaði og handleggsbrotnaði fyrir um hálfum mánuði í mótorhjólaslysi og er nú að jafna sig á heimili sínu og Kristínar Jónasdóttur í Brattholti í Mosfellsbæ. Daginn eftir að Frímann slasaðist hvarf fyrsti kötturinn. „Það var Kameron sem fór út eins og venjulega og hefur ekki sést aftur. Næsta þriðjudagsmorgun, þegar ég var kominn heim af spítalanum, hurfu svo Tina, Mia og Torres á einu bretti," segir Frímann. Að sögn Frímanns er elsti kötturinn sem hvarf tólf ára gömul læða. Allir séu þeir alvanir að fara sinna ferða og hafi ávallt skilað sér aftur. Fjölskyldan hafi hringt í alla hugsanlega aðila til að hafa upp á köttunum en án árangurs. „Ofan á þetta kom til okkar kona, sem býr í næsta húsi, alveg miður sín og sagði að hennar köttur hefði horfið á sumardaginn fyrsta og hvorki sést tangur né tetur af honum síðan. Og frá þessum tíma hefur konan mín heldur ekki séð kött sem var vanur að koma á pallinn til okkar," útskýrir Frímann en tekur þó fram að enn séu kettir á sínum stað í sumum húsum í næsta nágrenni. Eins og fyrr segir hallast Frímann að því að dularfulla kattahvarfið sé af mannavöldum. „Ég vona þá að þeir séu allir dánir og að það sé ekki einhver að kvelja þá og pína eins og hefur nú þekkst," segir hann. Af þremur köttum þeirra hjóna sem eftir eru er ein persalæða, Kamilla, sem lætur aðeins sjá sig einstaka sinnum utandyra. Bambi og Sponsa fara enn þá út eins og þau eru vön. „Við erum logandi hrædd um að þau skili sér ekki aftur," segir Frímann. Emilía Helga Þórðardóttir, nágranni Frímanns, staðfestir að lítil hvít læða að nafni Bettý hafi horfið á sumardaginn fyrsta. „Maður heldur enn í vonina en síðan ég frétti af hinum köttunum sem hurfu hefur verið að læðast að manni illur grunur, því miður. Þetta getur varla verið tilviljun," segir Emilía. Hjá dýraeftirliti Mosfellsbæjar fengust þær upplýsingar að ekki hafi verið óvenju margar tilkynningar um týnda ketti í bænum að undanförnu. gar@frettabladid.is
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent Fleiri fréttir Vill afnema sektir við vændiskaup Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Sjá meira