Mottukeppni fyrir þá allra hörðustu - Tom Selleck keppnin á Boston 28. mars 2010 19:25 Tom Selleck var engin veifiskati.
Styrktarátakið Mottu-mars hefur vakið gríðarlega athygli undanfarið og náði hámarki á föstudaginn síðasta. En það sem færri vita er að átakið á sér fyrirmynd, sem er hin alræmda Tom Selleck keppni. Keppni þessi var haldin árlega fyrir nokkrum árum, en lagðist af um það leyti sem sem skemmtistaðurinn Sirkus hætti. Síðan þá hafa aðstandendur keppninnar legið í dvala og sumir átt erfitt með að fóta sig í lífinu. Mikil naflaskoðun hefur átt sér stað og mikið tómarúm hefur verið í sálum þessa fólks. Það var því vakning hjá þeim þegar að Krabbameinsfélagið blés í lúðra og skipaði karlpeningi þessarar þjóðar að safna mottu og ákváðu aðstandendur að henda í eina keppni, „mottumars" til heiðurs. Ef að þú vilt keppa og telur þig vera með mottu þess verða, skaltu mæta á Boston, biðja starfsmann um umsóknareyðublað og skrá þig. Hægt er að skrá sig til klukkan 20. mánudaginn 29. mars. Kynnir keppninnar að þessu sinni er Þorsteinn Guðmundsson en hann er frægastur fyrir uppistand og barngæsku. Hann skartar líka fallegu yfirvaraskeggi. Þorsteinn hannaði reyndar fermingarkirtilinn... en það er önnur saga. Þrír landsfrægir einstaklingar skipa dómnefnd, sem velur það yfirvaraskegg sem er eiganda sínum til mestrar prýði og þykir bera af í þokka og útgeislun. Dómnefnd velur fyrsta, annað og þriðja sætið og einnig hýjung ársins. Keppendur velja svo sjálfir vinsælasta strákinn. Ef að keppnin fyllist (30 manns+) fyrir 29. mars, fer fram úrdráttur að kvöldi 29. mars. Fyrstu 15 eru þó öruggir í keppni. Þeir sem sækja um eftir 15. umsækjanda eiga á hættu að lenda í pottinum þ.e.a.s ef að umsóknir fara yfir 30 manns. Það borgar sig s.s. að vera tímanlega - 2 vikur í keppni! Ágóði af sölu kvöldsins rennur til Krabbameinsfélagsins.
Mest lesið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fleiri fréttir „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Sjá meira