Fer á puttanum til Akureyrar 29. júlí 2010 06:00 Sigga göngugarpur Lagði af stað á puttanum til Akureyrar í gær og hefur leyfi til að sitja 50 kílómetra í senn í hverjum bíl. „
Ég get nú ekki sagt að ég sé mikill göngugarpur, en ég er frekar mikill fíkill á að gera eitthvað skemmtilegt. Helgin var alveg opin hjá mér og ég var nokkuð til í allt þannig að þetta var alveg tilvalið," segir Sigríður Garðarsdóttir. Síðustu daga hefur útvarpsstöðin FM 957 leitað að einstaklingi sem er tilbúinn að leggja það á sig að fara fótgangandi til Akureyrar á tónlistarhátíðina „Þriggja daga vakt" um verslunarmannahelgina. Fjöldinn allur af ævintýragjörnum Íslendingum sendu tölvupóst, og eftir litla keppni á milli þriggja aðila bar Sigga sigur úr býtum. Sigga lagði af stað norður til Akureyrar í hádeginu í gær fótgangandi frá Reykjavík til Akureyrar. Reglurnar eru þær að Sigga má húkka sér far með eins mörgum bílum og hún vill, en má þó ekki sitja lengri vegalengd en 50 kílómetra í einu í hverjum bíl. Hún fékk síma í verðlaun og er fylgst með henni í gegnum GPS-staðsetningarkerfið auk þess sem hún setur inn stöðuuppfærslur á Facebook-síðu útvarpsstöðvarinnar. „Ég er búin að taka mig til og er nú að redda bílnum mínum svo hann komist norður til mín. Svo er ég bara nokkuð góð í að leggja í hann," segir Sigga. „Ég held þetta taki um sex til sjö klukkutíma en það fer alveg eftir því hvað fólk er viljugt til að taka mig upp í." Sigga segist ekki hafa undirbúið sitt neitt sérstaklega fyrir ferðina heldur hafi átt góða úlpu og skó inni í skáp sem ætti að duga þar sem veðrið er mjög gott. „Ég hef engar áhyggjur á því að fá ekki far. Það hlýtur einhver að vilja taka mig upp í, ef ekki þá hafa vinir mínir boðist til að bjarga mér. Það er gott að eiga góða vini," segir Sigga spennt fyrir ævintýrinu. - ls
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira