Napalm Death á Eistnaflugi 6. mars 2010 06:00 Dauðarokksveitin Napalm Death er væntanleg til landsins í sumar. „
Þetta verður algjör sturlun,“ segir Stefán Magnússon, skipuleggjandi tónlistarhátíðarinnar Eistnaflug. Breska dauðarokkhljómsveitin Napalm Death kemur fram á Eistnaflugi í ár, en hátíðin er haldin árlega í Neskaupstað. Napalm Death var stofnuð árið 1981 og er brautryðjandi í heimi dauðarokksins. Þrátt fyrir að hljómsveitin sé búin að vera að í næstum því 30 ár eru meðlimirnir enn þá í fullu fjöri að sögn Stefáns. „Það er svo víðsfjarri að þeir séu orðnir einhverjar lummur,“ segir hann. „Þeir sem hafa séð þá úti tala um snilld. Algjöra snilld.“ Eistnaflug hefur stækkað ár frá ári, en fleiri en þúsund gestir sóttu hátíðina í fyrra. Hljómsveitir á borð við Mínus og Dr. Spock hafa boðað komu sína í ár ásamt mörgum af helstu rokksveitum landsins. Stefán skynjar mikla spennu fyrir Napalm Death. „Gömlu hundarnir sem hlustuðu á Scum-plötuna eru búnir að hafa samband við mig. Þeir trúa þessu ekki,“ segir hann. Meðlimir Napalm Death eru mjög spenntir fyrir komunni til Íslands og ætla að sögn Stefáns að skoða land og þjóð. „Þeir ætla að fara í Dimmuborgir, taka túristann og hafa gaman,“ segir Stefán. „Shane og Barney [meðlimir Napalm Death] eru þegar byrjaðir að plana ferðalagið.“ Eistnaflug fer fram dagana 8. til 10. júlí og miðasala hefst eftir helgi. Miðaverð er að sjálfsögðu 6.666 krónur. - afb
Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Sjá meira