Goðsagnakennd Mínusmynd sýnd á ný 6. nóvember 2010 10:00 Grímur Þórðarson, umsjónarmaður Arnarhreiðursins, ásamt Frosta Runólfssyni og Haraldi Sigurjónssyni, leikstjórum heimildarmyndarinnar um Mínus. fréttablaðið/vilhelm
Heimildarmynd um harðkjarnasveitina Mínus verður fyrsta mynd stofnkvölds kvikmyndaklúbbsins Arnarhreiðursins, sem hefur aðsetur í Bíó Paradís. Myndin þótti það umdeild á sínum tíma að hún átti aldrei að koma fyrir augu almennings og er því sveipuð eins konar goðsagnakenndum ljóma. Myndin verður sýnd á miðvikudag klukkan 20.30. Grímur Þórðarson, umsjónarmaður Arnarhreiðursins, segist hafa vitað af myndinni í mörg ár og þótti kjörið að hefja göngu klúbbsins með látum. Leikstjórar myndarinnar eru Frosti Runólfsson og Haraldur Sigurjónsson og fylgdu þeir Mínusmönnum eftir á árunum 2001 til 2005. „Þetta er án efa ein svæsnasta heimildarmynd um íslenska hljómsveit sem gerð hefur verið. Það var sumt í myndinni sem þurfti að fjúka því það var svo svaðalega bannað börnum, en þrátt fyrir það er myndin enn eins mikið „sex, drugs and rock ‘n‘ roll“ og hugsast getur,“ segir Frosti. Inntur eftir því hvort meðlimir sveitarinnar séu sáttir við sýninguna svarar Frosti því játandi. „Hefði Grímur spurt okkur fyrir þremur árum hvort hann mætti sýna myndina hefðum við hiklaust sagt nei. Strákarnir hafa þroskast það langt frá þessu núna að þeim er sama þótt hún sé sýnd. Nú geta þeir litið á þetta sem bernskubrek sem hægt er að hafa gaman af.“ Miðasala er þegar hafin á sýninguna og kostar 1.000 krónur og gildir hér orðtakið fyrstir koma fyrstir sjá. Hægt er að nálgast miða í Bíó Paradís og á midi.is.- sm
Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Lífið samstarf Fleiri fréttir Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Sjá meira