Handboltinn er þjóðaríþróttin 6. nóvember 2010 11:00 Þorsteinn Joð stjórnar HM-stofu fyrir HM í handbolta sem fram fer í Svíþjóð. Fréttablaðið/Stefán
Þorsteinn Joð Vilhjálmsson skiptir yfir í handboltann. Hann verður ekki í vandræðum með að finna álitsgjafa enda næstum annar hver maður verið atvinnumaður í íþróttinni. „Við erum neðarlega á öllum listum í heiminum nema í handbolta. Þar erum við meðal þeirra bestu,“ segir Þorsteinn J. Vilhjálmsson. Hann mun stýra HM-stofu fyrir heimsmeistaramótið í handbolta sem fram fer í janúar á næsta ári í Svíþjóð en keppnin verður að þessu sinni á Stöð 2 Sport, ekki RÚV eins og öll önnur stórmót íslenska landsliðsins í handbolta. Þorsteinn og félagar munu hita upp fyrir keppnina í byrjun desember þegar sýnt verður beint frá nokkurs konar Norðurlandamóti en alvaran hefst svo þann 14. janúar þegar Ísland mætir Ungverjalandi í Norrköping. Þorsteinn viðurkennir að það sé vissulega himinn og haf milli vinsælda fótboltans og handboltans á heimsvísu. „En þetta er þjóðaríþróttin okkar, ef það er eitthvað sem sameinar þjóðina um eitt málefni þá er það handboltinn. Þetta er því stór íþrótt í huga Íslendinga,“ segir Þorsteinn. Að sögn Þorsteins verður HM-stofan með svipuðum hætti og fyrir stórmótin í fótbolta, sérfræðingar munu mæta til leiks og kryfja leikina og Þorsteinn ætti ekki að vera í neinum vandræðum með að finna gamlar kempur sem þekkja leikinn út og inn. Hins vegar vaknar óneitanlega upp gamall kvíðadraugur þegar ljóst er að tjalda á öllu til og gera „strákunum okkar“ hátt undir höfði. Því þegar væntingarnar hafa verið miklar og Íslendingar hafa ætlað að sigra heiminn í parketlögðum íþróttahöllum hefur niðurstaðan oftar en ekki valdið vonbrigðum. „Ég er ekkert mikið að hugsa um það. Og ég held að það skipti engu máli hvort væntingarnar séu miklar eða litlar, það er dauður maður sem hefur ekki gaman af því að horfa á HM í handbolta í janúar.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Fleiri fréttir Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Sjá meira