Rándýr leigubíll frá Barcelona 21. apríl 2010 06:00 Ágúst Jakobsson þurfti að keyra frá Barcelona til London eftir að hafa tekið upp auglýsingu með Lionel Messi. Tökurnar gengu vel en heimferðin var hræðileg að sögn Ágústs. „
Ég mæli ekki með svona ferðalagi en þetta var bara eina leiðin til að komast heim,“ segir Ágúst Jakobsson kvikmyndagerðarmaður. Eins og Fréttablaðið greindi frá í síðustu viku var Ágúst fenginn til að taka upp auglýsingu með Lionel Messi, besta knattspyrnumanni heims. Auglýsingin er fyrir kínverskt fjármálafyrirtæki og var hluti hennar tekinn í Barcelona. Ágúst komst með naumindum þangað áður en flug lagðist af í Evrópu vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og hann lenti í miklum vandræðum með að komast heim til London. Það var þó bót í máli að tökurnar með Messi gengu mjög vel. „Það lá allt flug til London og Englands niðri, allar lestir voru fullar og ekki var hægt að fá bílaleigubíla í Barcelona. Við tókum því leigubíl sem breska framleiðslufyrirtækið sem ég var að vinna hjá borgaði,“ segir Ágúst. Leigubílnum deildi hann með fimm vinnufélögum sínum og reikningurinn var þokkalegur; um fjögur þúsund evrur eða tæpar 700 þúsund íslenskar krónur. „Þetta var Mercedes Benz Vito Mini Van sem var bara þokkalega þægilegur fyrstu tíu tímana til Parísar en svo var maður alveg búinn að fá hundleiða á þessari keyrslu,“ segir Ágúst sem komst heim til sín klukkan fjögur um nótt eftir tuttugu tíma ferðalag. Á mánudag er svo ráðgert að hann haldi til Peking í Kína til að klára gerð auglýsingarinnar. „Nú er bara spurning hvort ég komist þangað,“ segir Ágúst.- hdm
Mest lesið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Sjá meira