Lífið

Gengur með ódýrar eftirlíkingar

Jessica Simpson. MYND/Cover Media
Jessica Simpson. MYND/Cover Media

Söngkonan Jessica Simpson segist hiklaust ganga með gerviskartgripi þegar hún gengur rauða dregilinn.

Jessica kaupir ódýrar eftirlíkingar í staðinn fyrir að skuldsetja sig vegna rándýrra skartgripa sem hún notar í örfá skipti og líka af því að enginn sér muninn.

Jessica segir að fræga ríka fólkið geri alltaf ráð fyrir að allir skartgripir sem hún gengur með séu ekta.

„Það besta við að vera fræg er að ég kemst upp með að ganga með eftirlíkingar. Engum dettur í hug að ég noti óekta skartgripi," sagði Jessica.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.