Lífið

Forest Whitaker: Ekki öskra á börnin

Mynd/AFP
Bandaríski leikarinn Forest Whitaker segir að engum finnst gott að láta öskra á sig og alls ekki börnum. Hann á fjögur börn með eiginkonunni sinni Keisha Nash og viðurkennir að þau geti verið afar fyrirferðamikil. Hann hafi þó aldrei hrópað á þau.

Whitaker segir að dætur hans séu sterkar ungar konur og tekur sem dæmi þegar ein þeirra svaraði konu nýverið fullum hálsi. „Einn daginn var dóttir mín að hlaupa við sundlaugarbakka og þá öskraði kona á hana að hætta að hlaupa. Þá labbaði dóttir mín að henni og sagði: „ Ég skal hætta að hlaupa, en ekki öskra á mig," og svo gekk hún í burtu. Ég varð mjög stoltur af henni," segir leikarinn í viðtali við bandaríska blaðið Chicago Sun-Times.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.