Tíu konur á aldrinum 22 til 62 ára sitja naktar fyrir 10. apríl 2010 04:00 Søren Rønholt kom til landsins í gær og dvelur hér til 18. apríl. Hann mun nýta tímann í að taka nektarmyndir af tíu íslenskum konum á heimilum sínum. fréttablaðið/stefán „
Þátttakan var mjög góð og ég fékk eiginlega of margar umsóknir," segir danski tískuljósmyndarinn Søren Rønholt. Mikla athygli vakti á miðvikudag þegar Søren auglýsti eftir tíu íslenskum konum til að sitja naktar fyrir á heimilum sínum. Hann vinnur að bók um konur á Norðurlöndunum og ætlar að taka myndir af tíu dönskum, íslenskum, sænskum, finnskum og norskum konum. Søren er tískuljósmyndari í heimalandi sínu og hefur tekið myndir af mörgum af helstu stjörnum landsins. „Fyrir nokkrum árum fór ég að velta fyrir mér hvað væri að staðalímyndunum í tískubransanum," segir Søren spurður um tilurð verkefnisins. „Myndvinnsla og notkun á Photoshop fór úr böndunum og ég vildi skoða hvernig líkamar kvenna á Norðurlöndunum líta út í raun og veru." Ertu búinn að velja tíu íslenskar konur í verkefnið? „Já, ég er búinn að velja konurnar. Það getur verið erfið vinna því þær eru að fara að sitja fyrir naktar og þekkja mig ekki neitt. Þannig að ég þarf auðvitað að ræða mikið við þær." Á hvaða aldri eru þær? „Konurnar eru á aldrinum 22 til 62 ára." Søren segir að verkefnið sé ekki aðeins heimild um útlit kvenfólksins á Norðurlöndunum heldur einnig um heimili fólks og umhverfi. „Bókin verður heimild um tímana okkar," segir hann. „Myndirnar sýna hvernig við lítum út - hvernig danskar og íslenskar konur líta út á heimilum sínum árið 2010." Engum myndvinnslubrögðum eða Photoshop-göldrum verður beitt til að fegra myndirnar, en Søren ítrekar þó að þær eigi að líta mjög vel út. „Myndirnar verða ofurnáttúrulegar," segir hann. Settirðu konunum einhver líkamleg skilyrði? „Nei, ekkert svoleiðis. Einu skilyrðin voru þau að konurnar væru 18 ára eða eldri og vildu taka þátt í verkefninu. Það er mjög mikilvægt." Søren finnur fyrir miklum áhuga á verkefninu hér á landi og segir að það komi sér skemmtilega á óvart. „Ég vona að ég geti sýnt myndirnar á Íslandi þegar að því kemur og mun gera allt sem ég get til þess að það verði að veruleika," segir hann að lokum. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana Tónlist Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fleiri fréttir Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Sjá meira