Íslensk frumsýningarbomba: níu myndir á leiðinni 8. september 2010 12:00 Algjör Sveppi og dularfulla hótelherbergið er frumsýnd á morgun.
Haustið markar yfirleitt upphaf frumsýninga íslenskra kvikmynda. Þrír leikstjórar frumsýna sína fyrstu mynd í fullri lengd, þrjár kvikmyndir byggja á íslenskum skáldverkum og tvær á leikverkum eftir Jón Atla Jónasson. Algjör Sveppi og dularfulla hótelherbergið ríður á vaðið en hún verður frumsýnd á morgun. Síðan kemur kolsvarta komedían Sumarlandið en hún er fyrsta kvikmynd Gríms Hákonarsonar í fullri lengd. Myndin verður frumsýnd í næstu viku. Næsta frumsýning er síðan unglingamyndin Órói sem byggir á bókum Ingibjargar Reynisdóttur og er leikstýrt af Baldvini Z en stefnt er að frumsýningu 14. október. Brim, kvikmynd Árna Ólafs Ásgeirssonar með Vesturporti í helstu hlutverkum, verður væntanlega einnig frumsýnd í október en hún er gerð eftir leikverki Jóns Atla Jónassonar. Reynir Lyngdal, Grímur Hákonarson og Baldvin Z frumsýna allir sína fyrstu mynd í fullri lengd í haust eða snemma á næsta ári. Þá hefur verið staðfest að Gauragangur Gunnars Björns Guðmundssonar verði ein af jólamyndum þessa árs, frumsýnd á annan í jólum. Kurteist fólk Ólafs Jóhannessonar verður einnig frumsýnd um jólahátíðina ef marka má vefsíðu Poppola Pictures. Þá er ekki komin endanleg dagsetning á Rokland eftir Martein Þórsson en samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins verður hún frumsýnd á þessu ári. Hún byggir á skáldsögu Hallgríms Helgasonar. Tvær íslenskar myndir eru síðan í tökum um þessar mundir: Okkar eigin Osló eftir Reyni Lyngdal og Djúpið í leikstjórn Baltasars Kormáks. Stefnt er að frumsýningu þeirra snemma á næsta ári en Djúpið er byggt á einleik eftir Jón Atla.- fgg
Mest lesið Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Tala dýrsins 666 og Neró keisari Lífið Ellen verður að Dóru á ný Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning Fleiri fréttir Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Sjá meira