Lífið

Boðið á Formúlu 1 í Singapúr

Ingibjörg Egilsdóttir, fegurðardrottnig og fyrirsæta fer á Formúlu 1 kappakstrurinn í Singapore í lok september.
Fréttablaðið/Anton Brink
Ingibjörg Egilsdóttir, fegurðardrottnig og fyrirsæta fer á Formúlu 1 kappakstrurinn í Singapore í lok september. Fréttablaðið/Anton Brink
„Ég er mjög spennt en veit í raunninni ekkert svo mikið um þetta ennþá,“ segir Ingibjörg Egilsdóttir, fegurðardrottning en henni hefur verið boðið að vera gestur á Formúlu 1 kappakstrinum sem fram fer í Singapúr þann 26 september næstkomandi. „Það var haft samband við mig fyrir stuttu síðan og mér boðið að koma og vera þarna í nokkra daga,“ segir Ingibjörg og bætir við að hún hafi verið valin út ásamt nokkrum öðrum stúlkum sem kepptu með henni í Miss Universe í fyrra.

„Ég er búin að staðfesta að ég ætla að koma en á eftir að fá dagskránna. Við förum allavega á keppnina sjálfa og svo á ég von á að það verði eitthvað um flott partý með rauða dreglinum og svona,“ segir Ingibjörg og viðurkennir að hún viti ekki nákvæmlega afhverju hún var valinn til að taka þátt í þessu. „Nei, ég ætla samt að komast að því vegna þess að það var alls ekki öllum keppendunum boðið. Ég á von á að þetta verði rosalega gaman og mikill glamúr,“ fullyrðir Ingibjörg en ferðin er boðsferð og því enginn kostnaður fyrir hana.

En er Ingibjörg aðdáandi Formúlunnar? „Nei, ég veit sko eiginlega ekkert um hana. En ég hef núna smá tíma til að kynna mér þetta og lesa mér til um Singapúr og Formúluna.“ -áp





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.