Lífið

Gefur út jólaplötu

Scott Weiland söngvari Stone Temple Pilots ætlar að gefa út jólaplötu síðar á þessu ári.
Scott Weiland söngvari Stone Temple Pilots ætlar að gefa út jólaplötu síðar á þessu ári.

Scott Weiland, söngvari Stone Temple Pilots, ætlar að gefa út jólaplötu síðar á þessu ári. Á plötunni verða nútímalegar útgáfur af gömlum og góðum jólalögum.

„Ég ákvað að gera alls konar útgáfur af þessum lögum vegna þess að þau hafa verið sungin svo oft áður,“ sagði Weiland.

Hann fetar þar í fótspor Bobs Dylan sem gaf út jólaplötuna Christmas in the Heart í október í fyrra. Auk þess að syngja með gruggsveitinni Stone Temple Pilots var Weiland fyrir nokkrum árum liðsmaður Velvet Revolver.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.