Lífið

Vinkonur þrátt fyrir frægðina

Juliette Lewis og Jennifer Aniston. MYND/Cover Media
Juliette Lewis og Jennifer Aniston. MYND/Cover Media

Leikkonunni Juliette Lewis, 37 ára, þykir óendanlega vænt um leikkonuna Jennifer Aniston, 41 árs.

Leikkonurnar hafa verið vinkonur svo árum skiptir og núna leika þær loksins saman í nýrri kvikmynd sem ber heitið The Switch.

Juliette er í skýjunum yfir því að hafa landað hlutverki í myndinni því þá fengu vinkonurnar að eyða tíma saman.

Juliette segir að strax og þær kynntust hafi tengingin skapast. Hún dáist að húmor Jennifer og léttum persónuleika hennar.

„Ég elska hana svo mikið. Við fílum hvor aðra og það breytist aldrei. Ég er til dæmis mjög jarðtengd eins og Jennifer og hún er líka ótrúlega fyndin og það líkar mér í fari hennar," sagði Juliette.

Juliette hefur undanfarin ár haldið því fram að hún „fitti" ekki inn í Hollywood innan um stjörnurnar sem eru flestar svo uppteknar af eigin ágæti að henni hryllir við því. Hún er hinsvegar góð vinkona hjónanna Tom Cruise og Katie Holmes.

„Ég heimsæki þau oft. Þau eru yndisleg. Síðast horfðum við á fótbolta saman. Það var þægilegt, afslappað og gott andrúmsloft á heimilinu," sagði Juliette.

The Switch á midi.is.

Sönn vinkona. Hvaða eiginleika þarf hún að hafa að þínu mati? Svara hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.