Lífið

Þegar mig langar í köku fæ ég mér köku

Kelly Osbourne. MYND/Cover Media
Kelly Osbourne. MYND/Cover Media

Kelly Osbourne, 25 ára,sem hlaut heimsfrægð þegar raunveruleikaþáttur um fjölskyldu hennar hóf göngu sína í sjónvarpi, segist loksins vera ánægð í lífinu.

Nýverið tók Kelly þátt í sjónvarpsþættinum Dancing with the Stars en hún segir að þátttaka hennar hafi hjálpað henni að létta sig.

„Ég þurfti að vakna á hverjum degi og taka þátt í rútínu sem fólst í réttu mataræði og ströngum æfingum. Ég áttaði mig lika á því að ég get gert hvað sem er. Og núna er ég léttari en við skulum hafa eitt á hreinu: Þegar mig langar í köku þá fæ ég mér köku," sagði Kelly

„Ég hef verið í átaki í 18 mánuði og núna er ég loksins ánægð með sjálfa mig. Þetta gengur jú allt saman út á að vera ánægð í eigin skinni. Eftir að ég lauk áfengismeðferð árið 2009 var ég staðráðin í að hætta að drekka og lifa heilbrigðara lífi. Ég er ekki lengur unglingurinn úr Osbourne fjölskyldunni heldur fullorðin ábyrg kona og það er frábært."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.